Fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús að Hverfisgötu 46 í Hafnarfirði hefur verið settá sölu. Eignin stendur á horni Hverfisgötu og Mjósunds, skammt frá miðbæ Hafnarfjarðar, á eftirsóttum stað með góðu aðgengi að þjónustu og útivistarsvæðum.
Húsið var byggt árið 1929 og er hannað af Guðjóni Arngrímssyni. Um er að ræða steypta eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og verið talsvert endurnýjuð. Meðal endurbóta má nefna nýtt eldhús frá árinu 2021, endurnýjun gólfefna að hluta og viðbót á svölum sem snúa út að baklóð.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er heildarstærð eignarinnar 177,2 fermetrar, þar af er bílskúr 23,6 fermetrar. Húsið skiptist á þrjár hæðir auk riss og er skipulag þess bæði hagkvæmt og fjölskylduvænt.
Á aðalhæð er forstofa, gestasalerni, gangur eða hol, eldhús og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu alrými með góðri birtu. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi, þar af eitt sem hefur verið nýtt sem sjónvarpsherbergi, auk baðherbergis og aðgengis að risi þar sem vinnuaðstaða er. Í kjallara er herbergi með sérinngangi, ásamt þvottahúsi og geymslu.
Lóðin er skjólgóð og snýr vel við sólu. Frá svölum hússins er fallegt útsýni og næsta nágrenni býður upp á gott rými og rólegt umhverfi þrátt fyrir nálægð við miðbæinn.
Ásett verð eignarinnar er 145 milljónir króna.


Komment