1
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

2
Heimur

Þingkona Demókrata lést í flugslysi

3
Heimur

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann

4
Innlent

Salmonella í nautahakki

5
Innlent

Maður fannst látinn við Háafoss

6
Pólitík

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi grunaður um lögbrot

7
Innlent

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza

8
Fólk

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“

9
Heimur

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington

10
Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku

Til baka

Ólafur Darri í Apple-myndbandi

„Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum.“

Ólafur Darri
Ólafur Darri ÓlafssonEinn þekktasti leikari Íslands frá upphafi
Mynd: VALERY HACHE / AFP

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, fundaði í síðustu viku með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum þess í Battersea í London. Tilefni fundarins var að óska eftir því að íslenska yrði tekin upp sem valmál í iOS-stýrikerfi fyrirtækisins, en sem stendur eru engin tæki frá Apple fáanleg með íslensku notendaviðmóti.

Á fundinum lagði ráðherra áherslu á mikilvægi þess að íslenskan, sem varðveist hefur í yfir þúsund ár, þróist í takt við tækniframfarir samtímans. Hann benti á að aðgengi að nýjustu tækni á móðurmáli skipti sköpum, ekki síst í samhengi við jafnt aðgengi allra að stafrænum lausnum.

Í því samhengi afhenti ráðherra fulltrúum Apple formlega áskorun fyrir hönd ÖBÍ, þar sem fyrirtækið er hvatt til að innleiða íslensku í stýrikerfi sín. Með því gæti Apple, að mati ráðherra og ÖBÍ, styrkt stöðu tungumálsins í stafrænum heimi og jafnframt staðið vörð um eitt af yfirlýstum kjarnagildum sínum, aðgengi fyrir alla notendur.

„Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum. Við erum ekki mörg en við erum fær í mörgu. Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra,“ segir Logi.

„Það er einstök fegurð fólgin í því að þegar kemur að tungumálinu okkar erum við sammála um að hlúa að þessari gersemi svo hún vaxi og dafni með okkur um ókomna tíð. Ég er ákaflega þakklátur þeim listamönnum sem aðstoðuðu okkur í að koma þessari kveðju saman og öllum þeim sem standa vörð um tungumálið okkar dagsdaglega með ýmsum hætti,“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

„Rugl og upphróp og falsfréttir“
Pólitík

„Rugl og upphróp og falsfréttir“

Inga Sæland ver Kristrúnu Frostadóttur
Leigjendasamtökin fá styrk frá stjórnvöldum
Pólitík

Leigjendasamtökin fá styrk frá stjórnvöldum

Utanríkisráðherra Írans er mættur til Rússlands
Heimur

Utanríkisráðherra Írans er mættur til Rússlands

Sorg í Danmörku eftir andlát Íslendings
Minning

Sorg í Danmörku eftir andlát Íslendings

Lík fannst eftir eldsvoða á Kanarí
Heimur

Lík fannst eftir eldsvoða á Kanarí

„Skiptir máli hvaða menning fær að þrífast innan flokka“
Innlent

„Skiptir máli hvaða menning fær að þrífast innan flokka“

Segir blaðamennsku á Íslandi í útrýmingarhættu
Innlent

Segir blaðamennsku á Íslandi í útrýmingarhættu

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi grunaður um lögbrot
Pólitík

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi grunaður um lögbrot

„Ég er ekki barnaníðingur“
Myndband
Heimur

„Ég er ekki barnaníðingur“

Misheppnaðar árásir Sólveigar
Slúður

Misheppnaðar árásir Sólveigar

Útsýnishöll í Grafarvogi sett á sölu
Myndir
Fólk

Útsýnishöll í Grafarvogi sett á sölu

Fórnarlamb fauta ekki í lífshættu
Innlent

Fórnarlamb fauta ekki í lífshættu

Fólk

Ólafur Darri í Apple-myndbandi
Myndband
Fólk

Ólafur Darri í Apple-myndbandi

„Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum.“
„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“
Viðtal
Fólk

„Lífið varð erfitt í kjölfar ásakananna“

Útsýnishöll í Grafarvogi sett á sölu
Myndir
Fólk

Útsýnishöll í Grafarvogi sett á sölu

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“
Fólk

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“

Ari lifir með kæfisvefn
Viðtal
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum
Viðtal
Fólk

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum

Loka auglýsingu