1
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

2
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

3
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

4
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

5
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

6
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

9
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

10
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Til baka

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“

Páll Edwald segir sund gott fyrir einmana.

Páll Edwald
Mynd: Ari Edwald og Páll Edwald

Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram 16. maí. Sonur hans, Páll Edwald, skipar sjötta sæti á sama lista. Í viðtali við Mannlíf ræða þeir meðal annars um áhersluatriði sín, hvað þeir telja að þeir hafi til brunns að bera sem borgarfulltrúar. Þeir tala opinskátt um lífsreynslu sem hefur mótað þá.

Í viðtalinu talar Páll meðal annars um að hann hafi misst vin sem svipti sig lífi og hrósar Píeta fyrir gott starf.

Ekkert sjálfgefið

Lífið er ekki alltaf dans á rósum en misjafnt er hve öldurnar eru háar í lífsins ólgusjó. Páll er ungur og honum hefur vegnað vel en er einhver lífsreynsla sem hefur haft áhrif á hann og jafnvel breytt lífssýn hans?

„Þegar ég horfi til baka og ber mig saman við marga í kringum mig þá stendur upp úr hvað ég hef fengið að vera sjálfstæður frá því ég man eftir mér. Það er sama hvað ég var gamall - ég fékk alltaf svo mikið traust frá foreldrum mínum svo sem varðandi hvenær ég myndi skila mér heim. Ég var ekki njörvaður niður í fastan ramma. Hvort sem ég var tíu ára eða tvítugur hef ég alltaf verið mjög sjálfstæður, tel ég.“

Hvað með lífsreynslu eða erfiðleika? Hann segir að það tengist því þegar hann hefur misst nákomna og vin sem svipti sig lífi. Hann nefnir líka ungt fólk í kringum sig sem hann þekkti ekki vel en fór of snemma.

Þetta hefur haft áhrif á Pál sem segist vera meðvitaður um hvað lífið er stutt og að ekkert er sjálfsagt. „Það á að nýta tímann sem maður hefur og gera allt strax sem maður getur og ekki velta sér upp úr því hvað öðrum finnst. Það hafa allir milljón skoðanir.“

Það er víða álag á ungu fólki og segir Páll að það sé alltaf hægt að gera betur. „Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf og Bergið.“ Hann nefnir hvað skólinn og íþróttastarf sé gagnlegt sem forvörn og að „gera það sem við getum“. „Ég hef tekið fyrir opnunartíma í sundi um helgar,“ segir hann en sundlaugum er nú lokað fyrr á kvöldin og um helgar. „Þótt þetta sé ein besta forvörnin þá er sund líka gott fyrir þá sem eru einmana. Þeir fara í sund, hitta fólk og geta tuðað í pottinum.“

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum
Heimur

Netanyahu vill nota rafmyntir til að komast hjá refsiaðgerðum

Seðlabankastjóri Ísraels er á öðru máli.
Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum
Heimur

Skelfilegar ásakanir á hendur föður Meghan Markle rannsakaðar á Filippseyjum

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Myndband
Fólk

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu
Myndir
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

Loka auglýsingu