1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

5
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

6
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

7
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

8
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

9
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

10
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Til baka

Ragnheiður tekur foreldra á Íslandi á beinið

„Þjóðirnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vandamál að stríða.“

Skóli Börn Barn
Barn í skólaMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari segir að sífellt stærri hópur foreldra taki skólagöngu barna sinna ekki nægilega alvarlega og að það hafi neikvæð áhrif bæði á námsárangur og skólastarf í heild. Þetta kemur fram í pistli, sem birtist á Vísi, sem hún skrifaði þar sem hún gagnrýnir aukna fjarveru nemenda og minnkandi þátttöku foreldra í námi barna sinna.

Í skrifum sínum bendir Ragnheiður á að skólaskylda sé lögbundin af ástæðu og að tíð leyfi frá skóla, hvort sem um sé að ræða lengri ferðalög eða staka daga, hafi bein áhrif á framvindu náms. „Þjóðirnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vandamál að stríða. Þar eru börn ekki stanslaust í leyfi frá skóla, hvort sem er í lengri tíma eða í stökum tímum. Það einfaldlega má ekki og þau fá ekki leyfi. Þar er ekki litið á skóla sem eitthvað sem er fyrir í fjölskyldulífinu. Þar er skóli hluti af fjölskyldulífinu.“

Hún segir að fjarvera nemenda geti einnig haft áhrif á gæði kennslu fyrir þá sem eftir sitja í skólastofunni.

Að hennar mati virðist skólastarf í auknum mæli þurfa að víkja fyrir tómstundum og öðru fjölskyldulífi hjá sumum foreldrum. Hún nefnir sérstaklega að andstaða hafi komið fram við einföld heimaverkefni fyrir yngstu nemendur, sem áður hafi verið talin mikilvæg leið til að efla tengsl foreldra við nám barna sinna.

Hún leggur áherslu á að samvera, samræður og þátttaka foreldra séu lykilatriði í að byggja upp virðingu barna fyrir námi.

Ragnheiður telur einnig að íslenskt samfélag sé orðið of upptekið af hraða og þátttöku í fjölbreyttum verkefnum, á kostnað þess að njóta og fylgja börnum sínum í gegnum skólagönguna.

Að lokum hvetur hún foreldra til að nýta þann mikla aðgang sem þeir hafa í dag að upplýsingum um skólastarf og samskiptum við kennara. Hún segir mikilvægt að foreldrar fylgist með skólagöngu barna sinna og taki virkan þátt í henni.

„Þegar þú velur að eiga barn þá er skólaganga hluti af því og henni þarf að sinna,“ segir Ragnheiður Stephensen.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu