1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Innlent

Konan er fundin

3
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

4
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

5
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

6
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

7
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

8
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

9
Innlent

Bylting við flugstöðina

10
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Til baka

Segir framkomu starfsmanns Reykjavíkur vera til skammar

Borgin segir að starfsmaðurinn vinni hjá einkareknum leikskóla

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – Mynd: Efling
Sólveig Anna JónsdóttirFormaður Eflingar er ósátt með hegðun starfsmann Reykjavíkurborgar.
Mynd: Efling

Verkalýðsforinginn Sólveig Anna Jónsdóttir ritaði færslu fyrr í dag þar sem hún greinir frá fundi sem trúnaðarmaður Eflingar í leikskólans sat og var vægast sagt brugðið.

„Í gær var haldinn fundur vegna mygluvandamála í leikskóla einum. Á fundinum voru stjórnendur, foreldrar, starfsfólk og í það minnsta tveir fulltrúar frá Reykjavíkurborg. Fólk spurði ýmissa spurninga og almennt var upplifunin sú að fulltrúar borgarinnar væru ekki nægilega vel undirbúnir,“ skrifaði Sólveig.

„Á fundinum voru bæði foreldrar og starfsmenn af erlendum uppruna. Einhver þeirra spurðu spurninga á ensku. Sá fulltrúi borgarinnar sem sat fyrir svörum tilkynnti þá að fundurinn færi eingöngu fram á íslensku. Þegar að fundargestir sögðust vera tilbúnir til að túlka var því hafnað af fulltrúa borgarinnar. Að þessum samskiptum loknum hunsaði hann allar spurningar sem að settar voru fram á ensku,“ hélt hún áfram og segir að hegðun þessi sé óásættanleg og starfsfólki leikskólans hafi verið brugðið og hafi upplifað vanvirðingu.

„Þau skilja ekki hversvegna ekki voru túlkar viðstaddir á fundinum. Ég tek undir með þeim. Framkoma umrædds einstaklings sem starfar hjá borginni er til háborinnar skammar. Leikskólar hér í borg eru fjölþjóðlegir. Þar starfar fólk með fjölbreyttan uppruna og þar dvelja börn allsstaðar að úr heiminum. Það er einfaldlega skylda starfsmanna að viðurkenna þessa staðreynd og vinna með fólki, hvort sem það talar íslensku eða ekki. Virðing og vinskapur gagnvart öllu starfsfólki og öllum foreldrum verður að vera til staðar. Annað gengur ekki,“ segir hún svo.

Sólveig heldur áfram og segist vera stolt af trúnaðarmanni Eflingar sem gerði athugasemd við framferði fulltrúa borgarinnar á fundinum og vonar að rætt verði af alvöru við manninn og útskýrt fyrir honum að hann geti ekki mismunað fólki eftir vegna tungumálakunnáttu.

Mannlíf hafði samband við Reykjavíkurborg til að fá viðbrögð við orðum Sólveigar. Samkvæmt borginni er leikskólinn sem um ræðir ekki vegum borgarinnar heldur einkarekinn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu