Einstaklega fallegt og vel skipulagt einbýlishús við Gunnarssund 4 í Hafnarfirði er komið á sölu.
Um er að ræða rúmgóða og fjölskylduvæna eign á þremur hæðum, alls 225,5 fermetrar að stærð. Húsið er staðsett á eftirsóttum stað við Austurgötu, þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, samgöngur og fjölbreytt mannlíf.
Eignin var byggð árið 2004 og hönnuð með það að markmiði að falla vel að sjarma og yfirbragði gamla bæjarins í Hafnarfirði. Húsið einkennist af björtum rýmum, góðri lofthæð og vönduðu skipulagi sem hentar vel fjölskyldulífi.
Á aðalhæð hússins er forstofa, tvö svefnherbergi, vinnuherbergi, baðherbergi og gestasalerni, auk þvottahúss og geymslu sem jafnframt getur nýst sem fataherbergi. Efri hæðin er opin og björt, þar sem eldhús, stofa og borðstofa mynda samfellda heild með útgengi á stórar, yfirbyggðar svalir sem bjóða upp á skjólsælt útisvæði.
Í kjallara er séríbúð með sérinngangi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, svo sem til útleigu eða sem hluta af heimili. Íbúðin skiptist í forstofu, opið rými með stofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og geymslur, auk útgengis í garð.
Ásett verð er 149.900.000 krónur.


Komment