Glæsilegt og vel staðsett einbýlishús við Baughús 41 í Grafarvogi hefur verið sett á sölu. Um er að ræða steinsteypt hús með tvöföldum innbyggðum bílskúr sem stendur á hornlóð í grónu og vinsælu hverfi. Ásett verð eignarinnar er 184,9 milljónir króna.
Húsið var byggt árið 1989 og er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Samkvæmt skráningu er birt stærð eignarinnar 232,4 fermetrar. Húsið er á þremur pöllum og nýtur fallegs útsýnis.
Á neðsta palli eru forstofa, snyrting, hol og eitt svefnherbergi. Þaðan er gengið upp veglegan stiga á miðhæð hússins þar sem eru sjónvarpsstofa, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi.
Á efsta palli er lokað eldhús með búri inn af, borðstofa, stofa og bjartur sólskáli. Frá stofurými eru góðar vestursvalir með fallegu útsýni yfir nágrennið.
Í sölulýsingu kemur fram að húsið sé sérlega vel viðhaldið og með afar haganlegu skipulagi. Tvöfaldur innbyggður bílskúr fylgir eigninni og góð bílastæði eru við húsið.
Eignin stendur á eftirsóttum stað í Grafarvogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, útivistarsvæði og stofnleiðir.

