1
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

2
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

3
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

4
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

5
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

6
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

7
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

8
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

9
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

10
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Til baka

Sigursæll þingmaður

Guðmundur Ari Sigurjónsson
Mynd: Víkingur

Jafnaðarmaðurinn Guðmundur Ari Sigurjónsson skaraði fram úr á heimavelli þegar hann tók þátt í Neshlaupinu á Seltjarnarnesi um helgina. Guðmundur Ari var áður oddviti Samfylkingarinnar á Nesinu og náði framúrskarandi árangri í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fleytti honum áfram í landsmálin og á Alþingi með Kristrúnarbylgjunni.

Í þetta skiptið sótti hann gullverðlaun í hlaupi og stærði sig af því á samfélagsmiðlum með mynd, hvar hann beit í medalíuna og kvað við: „Gott að sækja sigra á Nesinu.“

Guðmundi, sem er 37 ára gamall, hafði þannig tekist að slá við níu ára gömlum dreng sem kom á hælum honum í öðru sæti, en eins og sést á úrslitum ríflega þriggja kílómetra hlaupsins voru fullorðnir þátttakendur almennt í fylgd barna sinna og komu á sama tíma og börnin í mark.

Slíkt hlaup er gjarnan nefnt skemmtiskokk. Þingmaðurinn sprettharði hafði þó ekki stigið létt til jarðar í aðdraganda hlaupsins. Í viðtali við Vísi eftir hlaupið sagðist hann einsett sér að ná hraðanum 4.20, sem þýðir að hlaupa hvern kílómetra á fjórum mínútum og tuttugu sekúndum. Hefði hann tekið þátt í fullorðinshlaupinu, sem var tvöfalt lengra, og haldið sama hraða, hefði hann hafnað í 18. sæti af 84.

Guðmundur Ari sigraði þó ekki skemmtiskokkið í heild sinni, heldur aðeins í karlaflokki, því tvær 12 og 14 ára stúlkur voru á undan honum í mark. Því er svigrúm fyrir bætingu að ári.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“
Heimur

„Sorg er ást sem á hvergi höfði sínu að halla“

Martin Short ræðir sorgina eftir að dóttir hans lést
Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður gekk berserksgang í matvöruverslun í Umeå

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu
Slúður

Síðasta kjörtímabil Ingu

Loka auglýsingu