1
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

2
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

3
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

4
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku

5
Fólk

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

6
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

7
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

8
Fólk

Landsliðskona selur íbúð í Kópavogi

9
Innlent

Tomas tók lögreglumann hengingartaki

10
Minning

Birgir Valur Ágústsson er fallinn frá

Til baka

„Þegar barn er skotið í höfuðið á eftirlitsstöð, er það líka sjálfsvörn?“

Karen Kjartansdóttir bendir á glæpi Ísraela á Vesturbakka Palestínu

Karen-Kjartansdottir
Karen KjartansdóttirKaren kemur fram með staðreyndir um ástandið á Vesturbakkanum
Mynd: Facebook

Fyrrverandi fjölmiðlakonan og almannatengillinn Karen Kjartansdóttir gagnrýnir harðlega framferði Ísraels á Vesturbakkanum í nýrri færslu á Facebook, og beinir spurningum sínum sérstaklega að þeim sem verja aðgerðir Ísraelsmanna í Palestínu.

„Ég veit að sumum ykkar er tamt að verja ofbeldi Ísraelsmanna, sama hversu stjórnlaust það er,“ skrifar hún. „Yfirleitt með þeim rökum að Hamas séu ill samtök og því megi ísraelski herinn beita hvaða grimmd sem er, eða vegna þess að múslímar séu „vondir“ í eðli sínu. En hvernig útskýrið þið þá það sem gerist á Vesturbakkanum?“

Karen bendir á að þegar Ísrael sprengi sjúkrahús eða barnaskóla á Gaza, segi sumir „með yfirlætissvip hins upplýsta manns: „Þetta er sjálfsvörn“.“ Hún spyr síðan:

„En þegar hermenn og landræningjar ráðast á óvopnaða Palestínumenn í Jenin, Nablus eða Taybeh, hvað kallið þið það? Þegar barn er skotið í höfuðið á eftirlitsstöð, er það líka sjálfsvörn? Þegar kirkja er brennd í kristnu þorpi, eða bóndi missir lífsviðurværi sitt vegna árása landræningja er það þá líka barátta gegn Hamas?“

Karen vísar í tölur sem sýna alvarleika stöðunnar á Vesturbakkanum.

„1.001 Palestínumaður hefur verið drepinn af ísraelskum her eða landræningjum á Vesturbakkanum frá 7. október 2023. Um 10.000 hafa særst. 213 börn hafa verið drepin (eitt af hverjum fimm fórnarlömbum) og 7 fatlaðir einstaklingar eru meðal hinna myrtu,“ skrifar hún og bætir við að meira en þriðjungur fórnarlamba hafi verið „skotinn í höfuð eða efri hluta líkamans, oft í árásum sem gerðar eru að næturþeli eða við eftirlitsstöðvar.“

Hún bendir einnig á að „dauðsföll 44 kristinna Palestínumanna hafa verið staðfest frá október 2023“ og að kristnir íbúar í Taybeh, Betlehem og Ramallah hafi orðið fyrir „kerfisbundnum árásum landræningja“ þar sem „hefur verið kveikt í kirkjum, heimilum og bílum.“

Karen vitnar í skýrslu Norwegian Refugee Council frá júlí 2024 þar sem fram kemur að á Vesturbakkanum hafi aldraðir og fatlaðir verið sérstaklega viðkvæmir hópar þegar kemur að árásum:

„… enginn maður og enginn heimili eru örugg, ekki einu sinni þeir eldri, fatlaðir, eða börn.“

Að lokum bendir hún á að Vesturbakkinn sé ekki undir stjórn Hamas heldur Palestínsku heimastjórnarinnar, sem hafi í raun oft unnið með Ísrael í öryggismálum.

„Samt eru borgarar þar karlmenn, konur og börn, drepin, handtekin og hrakin af landi sínu daglega. Þar er engin „hernaðarógn“ sem hægt er að fela sig á bak við heldur bara hernám, aðskilnaðarstefna, landrán og refsileysi við látlausum brotum á alþjóðalögum,“ skrifar Karen að lokum.

Karen lætur langan lista af heimildum fylgja færslu sinni, máli sínu til stuðnings en hægt er að sjá þær hér fyrir neðan.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu