1
Fólk

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

2
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

3
Heimur

Clooney tjáir sig um fráfall sonar Cindy Crawford

4
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

5
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

6
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

7
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

8
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

9
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

10
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

Til baka

Tilgreina þá sem ekki flýja Gaza-borg sem hryðjuverkamenn

Minnst 53 Palestínumenn hafa verið drepnir í árásum Ísraelshers það sem af er degi.

Gaza-borg
Frá Gaza-borgTugir saklausra borgara eru drepnir á hverjum degi á Gaza
Mynd: OMAR AL-QATTAA / AFP

Að minnsta kosti 53 Palestínumenn hafa verið drepnir í loftárásum Ísraels á Gaza frá því í morgun. Árásirnar fylgja aðvörun Ísraels um að tugþúsundir íbúa sem enn eru í Gaza-borg hafi nú „síðasta tækifærið“ til að flýja, ella mæta þeir „öllum þunga“ árásarherferðarinnar.

Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz skrifaði á X í gær að allir sem væru áfram í borginni yrðu taldir „hryðjuverkamenn og stuðningsmenn hryðjuverka“.

Hinar stanslausu sprengjuárásir sem gerðar hafa verið á stærsta þéttbýlissvæði Gaza, hefur drepið tugi manna á hverjum degi, lagt fjölmargar íbúðarbyggingar og skóla í rúst og þvingað tugþúsundir Palestínumanna til að flýja til suðurs, þar sem þeir eru oftar en ekki skotnir á leiðinni.

Fréttaritari Al Jazeera, Hani Mahmoud, greindi frá því í dag að ísraelski herinn fyrirskipaði fólki að yfirgefa Gaza-borg en elti það síðan eftir strandveginum til suðurs með þyrlum, drónum og skriðdrekum sem skapaði „óreiðu og skelfingu“. „Stór hluti ástæðunnar fyrir því að fólk yfirgefur ekki borgina núna er ótti og hótanir sem herinn beitir,“ sagði hann.

Að minnsta kosti 10 manns voru drepnir í Gaza-borg í dag. Þar að auki létust 13 manns í suðurhluta Gaza þegar þeir reyndu að nálgast mannúðaraðstoð. Með þeim bætist fjöldi fórnarlamba sem hafa verið drepin í árásum á fólk sem leitar sér matar í hungursneyðinni sem Ísrael hefur valdi, og telur nú um 2.600 manns og um 19.000 hafa verið særðir.

Heildartala látinna frá upphafi stríðsins 7. október 2023 er nú komin í að minnsta kosti 66.225 manns og 168.938 hafa verið særðir, samkvæmt heimildum Al Jazeera. Eftir að Ísrael braut einhliða vopnahléið í mars hefur fjöldi látinna numið 13.357 og særðra 56.897.

Í dag var barn einnig drepið í drónaárás Ísraels í Ansar-hverfi, vestur af Gaza-borg. Níu manns voru drepnir og 13 særðir þegar flóttamenn voru gerðir að skotmarki í miðhluta Gaza. Í al-Bureij flóttamannabúðunum létust maður og kona hans í drónaárás á hús þeirra.

Annar Palestínumaður var drepinn og yfir 10 særðust í árás sunnan við Deir el-Balah. Í Khan Younis særðust átta manns þegar dróni sprengdi tjaldbúðir flóttamanna á háskólasvæði Al-Aqsa í al-Mawasi, sem Ísrael hefur ítrekað ráðist á þrátt fyrir að hafa lýst því sem „öruggu svæði“.

Þrátt fyrir linnulausar loftárásir til að neyða fólk til suðurs velja sumir að snúa aftur norður á bóginn, í mikilli hættu. Tugþúsundir hafa verið neyddar til að fara þessa hættulegu leið suður á bóginn undan sprengjuregni.

Á miðvikudag greindi fjölmiðlaskrifstofa Gaza frá því að ísraelski herinn hefði lokað al-Rashid-götunni, „einni af mikilvægustu slagæðum sem almenningur treystir á til ferða milli héraða Gaza“.

Vegna harðnandi átaka tilkynnti Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) á miðvikudag að það hefði tímabundið stöðvað starfsemi sína í Gaza-borg, líkt og Læknar án landamæra (MSF) höfðu gert viku áður.

„Við munum áfram leitast við að veita íbúum Gaza-borgar Gaza-borg hvenær sem aðstæður leyfa, frá skrifstofum okkar í Deir el-Balah og Rafah sem enn eru starfræktar,“ sagði í yfirlýsingu ICRC.

Á meðan heldur Hamas áfram að fjalla um tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé. Ekki er ljóst hvort þeir muni samþykkja hana þar sem hún er að miklu leyti talin þjóna markmiðum Ísraels.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Aðili fjarlægður úr verslun vegna ofbeldisfullrar hegðunar.
Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki
Myndband
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi
Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi
Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi

Íbúi stofnunar talinn hafa stungið nágranna sinn
Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Loka auglýsingu