1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

5
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

6
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

7
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

8
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

9
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

10
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

Til baka

Jón Ferdínand Estherarson

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands

Jón Ferdínand Estherarson
Jón Ferdínand Estherarson
Mynd: Sósíalistaflokkur Íslands

Eftirfarandi eru leiðréttingar á rangfærslum í fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga um aðalfund Sósíalistaflokks Íslands og andsvar formanns við ásökunum og hótunum um kæru á þann fund:

Aðalfundur Sósíalistaflokks Íslands var kynntur á félagsfundum flokksins og fundarboð var sent í tölvupósti á alla félaga flokksins og sömuleiðis ítrekun. Fundurinn var ekki leynilegri en svo að gervallt félagatalið fékk að vita af fundinum með löglegum og eðlilegum fyrirvara og allir áhugasamir félagar fengu kynningu líka á félagsfundum.

Ranglega er haldið fram að fundarmenn hafi ekki fengið að vita um staðsetningu fyrr en eftir að þeir höfðu skráð sig. Hið rétta er að í fundarboði var hlekkur á skráningareyðublað og um leið og smellt var á það voru allar nánari upplýsingar, meðal annars með nákvæmri staðsetningu og tímasetningu var að finna í inngangi þess, aðgengilegt öllum án þess að þurfa að skrá sig. Í tölvupóstinum sjálfum kom fram að nánari upplýsingar voru allar í eyðublaðinu. Það var ekkert á huldu með þetta og allt mjög gegnsætt.

Varðandi furðulega hótun Söru Stef Hildardóttur um kæru á aðalfund Sósíalistaflokks Íslands og aðdróttunum og ásökunum sem fylgdu þeirri hótun.

Eins og gefur að skilja og er öllum morgunaugljóst þá gengur það ekki upp að fólk sem býður sig fram gegn Sósíalistaflokknum með öðru framboði, gegnir trúnaðarstörfum fyrir framboð sem býður fram gegn Sósíalistaflokknum og með mjög opnum og alvarlegum hætti grefur undan flokknum, hendir flokknum út úr eigin húsnæði og vinnur með ráðum og dáðum og með opinberlega yfirlýstum hætti að því að granda Sósíalistaflokknum, að það fólk sé áfram félagar í flokknum. Það er augljós hagsmunaárekstur. Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku.

Það hefur engum dulist síðasta ár að hávær og fámennnur hópur stuðningsmanna Sönnu Magdalenu og Gunnars Smára hafa unnið með þessum hætti gegn flokknum eftir að Gunnar varð undir í lýðræðislegri kosningu á aðalfundi fyrir ári síðan. Staðreynd sem hann getur ekki sætt sig við. Sanna sjálf var endurkjörin og beðin um samstarf við nýja forystu, en því var hafnað algerlega af hennar hálfu með svaraleysi og afsögn tveimur dögum eftir aðalfund. Svo stóð hún og Sara Hildardóttir fyrir þeim gjörningi að henda Sósíalistaflokknum út úr húsnæði sínu, mættu síðar á fund flokksins með öskurhávaða og stofnuðu loks mótframboð gegn flokknum. Þætti einhverjum eðlilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir myndi kæra landsfund Samfylkingarinnar ef hún fengi ekki að vera þátttakandi í honum? Ætti Sigmundur Davíð enn að fá að mæta á flokksþing Framsóknarflokksins? Er Þorgerður Katrín enn höfð með í ráðum á landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þá má nefna að meðal fyrrum félaga sem eru ekki lengur í félagatali Sósíalistaflokksins eru einstaklingar sem gegna virkum trúnaðarstörfum fyrir VG og einn starfandi þingmaður Miðflokksins.

Þetta er auðvitað fjarstæðukennt. Við vísum öllum þessum ásökunum á bug og biðjum þetta fólk sem hefur þegar stofnað sitt sjálfstæða framboð og flokk að einbeita sér að framgangi eigin verkefna og láta af innistæðulausum og linnulausum árásum á starf Sósíalistaflokksins. Við erum engir óvinir né andstæðingar, heldur samherjar í pólitískum skoðunum allra jafna, það er því bara innilega miður að þau tali í orði um samstöðu fyrir kosningar en hegði sér svo með allt öðrum hætti að þeim loknum.

Sósíalistaflokkur Íslands óskar hins vegar Söru og Sönnu og þeirra hópi alls hins besta og velfarnaðar í sínum störfum fyrir Vor til Vinstri og Vinstrið.

Bestu kveðjur,

Jón Ferdínand Estherarson, formaður Sósíalistaflokks Íslands

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Skoðun

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Fórnarlömb til slátrunar
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Fórnarlömb til slátrunar

Streita og kulnun
Skoðun

Dávur í Dali

Streita og kulnun

Barnið og sannleikurinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Barnið og sannleikurinn

Áhættuleikur - Börn og seigla
Skoðun

Davíð Már Sigurðsson

Áhættuleikur - Börn og seigla

HUGARSTRÍÐ
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

HUGARSTRÍÐ

Loka auglýsingu