Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Tveir játa morð á rússneskum systkinum í Taílandi

Ætluðu að ræna af þeim mót­or­hjóli

Systkinin
Systk­inin Systk­inin veittu mót­spyrnu sem kost­aði þau lífið

Taí­lenska lög­reglan hefur hand­tekið tvo menn sem ját­uðu að hafa myrt rúss­nesk systk­ini sem höfðu verið saknað í nokkra daga.

Hin 22 ára gamla Diana Nazimova og 17 ára bróðir hennar, Roman Nazimov, hurfu aðfara­nótt 26. júlí í Pattaya. Móðir þeirra, Zarina Nazimova, til­kynnti um hvarfið eftir að mynda­vélar sýndu þau síð­ast aka á mót­or­hjóli um klukkan fjögur um nótt­ina.

„Börnin mín hurfu í Pattaya í nótt. Eftir að þau sáust síð­ast á mót­or­hjól­inu hefur ekk­ert spurst til þeirra og það er slökkt á símum þeirra,“ skrif­aði hún á Instagram.

Samkvæmt kunn­ingjum systk­in­anna hafði fjöl­skyldan flutt frá Rúss­landi til Taílands fyrir fimm árum. Daginn áður en hún hvarf sagði Diana móður sinni að iPhone-sími hennar hefði varað við óþekktu Bluetooth-rakn­ing­ar­tæki í nágrenn­inu og að hún hefði á til­finn­ing­unni að ein­hver væri að elta hana.

Leit­ar­menn fundu síðar mót­or­hjólið sem systk­inin höfðu verið á. Samkvæmt taí­lenskum fjöl­miðlum hafði því verið tekið í sundur og það grafið í kirkju­garði.

Lög­reglan hand­tók upp­haf­lega tvo menn sem grun­aðir voru um að hafa aðstoðað ræn­ingj­ana, en þeim var sleppt eftir að þeir neit­uðu sök.

Daginn eftir voru tveir aðrir menn, 43 ára og 39 ára, hand­teknir. Samkvæmt taí­lenska miðl­inum Khaosod ját­uðu þeir við yfir­heyrslur að hafa orðið systkin­unum að bana.

Menn­irnir sögð­ust hafa ætlað að stela mót­or­hjóli systk­in­anna. Þegar þau veittu mót­spyrnu hafi þeir skotið Roman til bana og barið Dianu svo illa að hún lést af áverk­unum. Að því loknu hafi þeir flutt lík þeirra og grafið í fjall­lendi í Chonburi-hér­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Húsið var reist árið 2002
Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Heimur

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Hestarnir fóru inn um fremri dyr vagnsins og út um þær aftari
Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“