1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Ungur rafhjólaökumaður dæmdur eftir banaslys á gangbraut

„Mamma átti aldrei möguleika.“

Gloria Stephenson
Gloria StephensonGloria mætti örlögum sínum fyrir ári síðan

Hrollvekjandi upptökur sýna augnablikið þegar ungur ökumaður rafhjóls flúði vettvang eftir að hafa ekið á og banað langömmu á gangbraut.

Billy Stokoe, 19 ára, var dæmdur í sex ára og níu mánaða fangelsi eftir að hafa ekið á Gloriu Stephenson, 86 ára, á miklum hraða í Sunderland þann 16. maí í fyrra.

slysið
Mynd: Northumbria-lögreglan

Við slysið var Stokoe undir áhrifum kannabisefna og las skilaboð í farsíma sem hann hélt á í vinstri hendi, sem kom í veg fyrir að hann gæti notað bremsuna. Áreksturinn var svo harður að Stephenson lést samstundis.

Öryggismyndavélar við götuna náðu því þegar Stokoe skall á konunni og kastaðist af öflugu Sur-Ron Light Bee X rafhjóli sínu, sem kostaði um 4.000 pund (659 þúsund krónur) en því var ekið ólöglega á almennum vegum. Á upptökunum sést hann taka af sér lambhúshettu, hlaupa að konunni þar sem hún lá á götunni og stuttu síðar stökkva aftur á hjólið og flýja vettvang.

Billy Stokoe
Mynd: Northumbria-lögreglan

Lögregla handtók hann síðar eftir að móðir hans fór með hann á lögreglustöð til að gefa sig fram. Fyrstu orð hans við lögreglu voru: „Er hún dáin?“

Við dómsuppkvaðningu fyrir Newcastle Crown Court á föstudag játaði hann sök fyrir hættulegan akstur sem leiddi til dauða, akstur án ökuréttinda og akstur ótryggðs ökutækis.

Hann mun geta sótt um reynslulausn eftir að hafa afplánað helming refsingarinnar og verður sviptur ökurétti í fimm ár eftir lausn úr fangelsi.

Fjölskylda Stephenson lýsti hinum átakanlega missi „fallegrar, gáfaðrar og afar sjálfstæðrar“ langömmu með „mikla lífsgleði“. Stephenson, sem hafði orðið ekkja þrisvar sinnum, hafði átt farsælan feril innan breska heilbrigðiskerfisins. Hún hafði eignast fjögur börn og át 13 barnabörn.

Dætur hennar sögðu hana hafa verið hrausta og virka og að hún hefði verið á leið í frí til Lanzarote þar sem hún ætti stóran vinahóp. Hún hafi verið að ganga með hund dóttur sinnar til að ná markmiði sínu um 10 þúsund skref á dag þegar slysið varð.

Dóttir hennar, Lisa Trench, sagði fyrir dómi:

„Þú, á ólöglega hjólinu þínu. Þú, á ofsahraða. Þú, í símanum. Þú, undir áhrifum kannabis. Mamma átti aldrei möguleika.“

Önnur dóttir, Julie Francis, gagnrýndi Stokoe harðlega fyrir að hafa flúið vettvang.

„Hann hljóp burt og skildi hana eftir eins og hún væri ekki neitt. Hann er hugleysingi sem hugsaði aðeins um sjálfan sig. Hann skildi hana eftir eina til að deyja eins og rusl í ræsinu,“ sagði hún.

Fjölskyldan gagnrýndi einnig skort hans á iðrun og benti á að aðeins átta dögum eftir dauða Stephenson hefði hann farið á Wembley-leikvanginn til að horfa á Sunderland spila og síðar óskað eftir breytingu á skilorði sínu svo hann gæti farið í utanlandsferð.

Lögreglan í Northumbria sagði að Stokoe hefði sést aka hættulega um götur Sunderland fyrr sama dag og sveigja á milli bíla á miklum hraða.

„Þetta var slys sem beið eftir að gerast,“ sagði rannsóknarstjórinn Billy Mulligan hjá lögreglunni og bætti við að hjólin gætu farið úr 0 í 60 mílur á klukkustund hraðar en flestir bílar.

Hann sagði upptökur sýna Stokoe aka án þess að halda í stýrið, án þess að nota bremsur og sveigja á milli bíla áður en hann ók á Stephenson á gangbrautinni.

„Á meðan vegfarendur reyndu að hjálpa Gloriu steig hann aftur á hjólið og yfirgaf svæðið,“ sagði Mulligan.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

„Við höfum hætt öllum viðskiptum við Rússa sem hefur kostað okkur milljarða“
Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Maðurinn var með reiðhjólahjálm
Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Loka auglýsingu