Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Magnús S. Kristinsson ók til Póllands með hjálpargögn: „Ein úkraínsk flóttakona grét alla leiðina“

Magnús S. Kristinsson
Magnús S. Krist­ins­son

„Þegar stríðið hófst í Úkraínu þá hugsaði ég með mér að það hlyti að vera eitthvað sem maður gæti gert,“ segir Magnús S. Kristinsson sem hefur verið búsettur í Svíþjóð í 12 ár en kemur heim með ferjunni Norröna, eða Norrænu, í næstu viku þar sem hann ætlar að flytja heim. Hann segir að hann og vinnu­félagi hans, Bo Rundberg, hafi haft samband við Rauða krossinn í Svíþjóð og spurt hvort þeir gætu ekki gert eitthvað til hjálpar en að svarið hafi verið að þeir gætu gefið pening til hjálpar­starfsins en þeir vildu gera eitthvað sjálfir. Þeir vinna hjá rútu­fyrirtæki og stakk Bosse, vinnu­félagi hans, upp á því að fá rútu til að aka til Póllands og hjálpa þannig. „Við fórum til forstjórans og spurðum hvort við fengjum rútu án þess að borga fyrir hana. Hann sagði svo vera en að við yrðum sjálfir að borga elds­neytið auk þess sem hann sagði að við mættum ekki fara yfir landamæri Úkraínu vegna þess að þá væri rútan ekki tryggð lengur.“

Félagarnir tilkynntu á Facebook-síðum sínum um verkefnið sem fram undan var og skrifuðu að ef einhverjir vildu hjálpa þá væri það velkomið. „Ég hefði aldrei getað ímyndað mér eða trúað þessum viðbrögðum sem við fengum. Það var fullt af fólki sem gaf peninga; það gáfu engir stórar upphæðir en þetta voru aðallega 500 og 1.000 krónur íslenskar en nokkrir gáfu 5.000 krónur og það voru stærstu gjafirnar.“

Þeir komumst í samband við fólk í Póllandi og í þeim hópi er kaþólskur prestur sem hafði unnið í mörg ár í tengslum við flótta­menn og hælis­leitendur sem komu til Póllands. „Við fengum að vita hvað það væri sem fólk þyrfti mest á að halda og það voru til dæmis svefn­pokar, teppi, skyndi­matur sem þurfti ekki að elda, klósett­pappír, bleiur og dömubindi. Og margir gáfu þessa hluti  auk þess sem sumt var þetta keypti fyrir peninginn sem safnaðist.“

Sænski prest­ur­inn og pólski, kaþ­ólski prest­ur­inn.

Félagarnir tveir og sænskur prestur sem er sérfræðingur í áfalla­hjálp lögðu síðan af stað síðastliðinn föstudags­morgun á rútunni og drógu á eftir sér kerru sem var full af vörum en kerran tekur eitt og hálft tonn auk þess sem ýmsar vörur voru geymdar aftast í rútunni og í farangurs­rými hennar. Eftir keyrslu og ferð með ferju var komið til Póllands á laugar­daginn og í Gdansk var náð í barna­lækni sem slóst í hópinn og síðan var ekið til Lublin sem er nálægt úkraínsku landa­mærunum.

Við tókum fimm fjöl­skyldur með okkur.

„Við tæmdum allt dótið inn í vöru­geymslu sem presturinn er með og tókum síðan fimm fjöl­skyldur með okkur og keyrðum af stað til baka um miðnætti aðfara­nótt laugar­dags.“

Grét alla leiðina

Magnús segir að það hafi verið fyrir milli­göngu pólska prestsins hvaða úkraínsku flótta­menn fóru með rútunni til Svíþjóðar og bendir hann á þá að staðreynd að hundruð þúsunda flótta­manna séu í Lublin og halda þeir til meðal annars á heimilum, skólum og íþrótta­húsum.

„Þeir sem vildu fara með okkur var til dæmis fjöl­skylda þar sem konan var í hjólastól og urðum við að bera hana inn í rútuna. Ein úkraínsk flótta­kona grét alla leiðina; maðurinn hennar var í Úkraínu en hún vissi ekki hvar hann var. Hún var með fimm til sex ára strák og eina unglings­stelpu með sér. Svo voru þrjár aðrar fjöl­skyldur.“

Þögn.

Sumir fóru með starfs­fólki útlend­inga­stofn­unar.

„Við sáum um að keyra þau og sáum um að gefa þeim að borða og þau fengu allt sem þau þurftu um borð í ferjunni. Sumir áttu ættingja í Svíþjóð sem náðu í þau þegar ferjan kom að landi í Karlskrona og sumir fóru með starfs­fólki útlendinga­stofnunar. Ein fjöl­skylda fór með okkur alla leið til Gauta­borgar; þessi kona í hjóla­stólnum og fjöl­skylda hennar.“

Félagarnir óku svo rútunni inn á bílastæði rútu­fyrir­tækisins og voru búnir að þrífa hana um klukkan fjögur aðfara­nótt síðastliðins mánudags. „Ég svaf allan gærdaginn,“ segir Magnús en viðtalið var tekið á þriðjudaginn.

Þetta grípur alla

Magnús segist hafa orðið var við hvað Pólverjar séu samstíga í að hjálpa úkraínskum flótta­mönnum. „Við upplifðum það alls staðar þar sem við komum og alls staðar þar sem maður þekkir fólk. Þetta grípur alla. Þetta hefur áhrif á alla. Ég held að fólk hugsi öðruvísi vegna þessa stríðs. Ég held að Pólverjar hugsi með sér að ef Pútín vinni þetta stríð þá gætu þeir orðið næstir.“

Magnús talaði ekki mikið við flótta­mennina á leiðinni en þó eitthvað í ferjunni. „Ég upplifði ekki vonleysi hjá fólkinu; það var eins og það hefði ekki misst trúna. Það var ofsalega þakklátt fyrir hjálpina. Það var einhver gleði í því. Þetta fólk lenti í aðstæðum sem það ræður ekki við og reynir að gera sitt besta í þeim aðstæðum.“

Að hjálpa henni á betri stað í bili alla­vega.

Magnús segir að það sem sitji í sér eftir þessa ferð sé konan sem grét svo mikið. „Það situr í mér að fá að taka utan um hana og hjálpa henni út úr þessum aðstæðum; ekki bara ég heldur allir sem voru með mér í ferðinni. Að hjálpa henni á betri stað í bili allavega. Og líka að sjá barnið hennar fimm eða sex ára; drengurinn var mjög lokaður í byrjun en rétt áður en við komum í land í ferjunni þá var hann farinn að leika sér. Og konan var farin að brosa í restina. Það hafði dýpstu áhrifin á mig að sjá venjulegt fólk lenda í aðstæðum sem það hefur ekkert um að segja.“

Misstu allt

Magnús flutti til Svíþjóðar eftir banka­hrunið en hann segir að hann og þáverandi eiginkona hans hafi misst allt í hruninu.

„Ég hafði starfað sem sölumaður og síðar fasteigna­sali og var í því starfi þegar hrunið varð. Við bjuggum í 300 fermetra raðhúsi og áttum 20-30 milljónir í því og það hvarf allt á einni nóttu. Og ég missti vinnuna. Það tekur allt stolt í burtu að vera fasteigna­sali sem þénaði upp undir eina og hálfa milljón á mánuði og næsta mánuð má segja að ég hafi ekki átt mat handa börnunum og þurfti að standa í röð hjá Hjálpar­stofnun kirkjunnar og Mæðrastyrks­nefnd til að fá mat og svo jóla­gjafir fyrir jólin til að geta gefið börnunum. Þetta tók í burtu allt sem heitir stolt og sjálfs­virðing; að neyðast til að fara þessa leið og biðja um hjálp. Það er eitthvað sem ég hafði aldrei gert í lífi mínu áður. Ég varð að fara þessa leið til að börnin mín hefðu mat og fjöl­skyldan hefði eitthvað til að lifa af. Á Íslandi hefur maður alltaf einhvern einhvers staðar en ég vildi ekki tala við fullt af fólki í von um aðstoð; mér leið nógu illa yfir ástandinu eins og það var. Við fengum svo leiguíbúð og náðum að halda henni áður en við fluttum svo til Svíþjóðar.“

Magnús segir að þetta sé það erfiðasta sem hann hefur gengið í gegnum fyrir utan það þegar hjónin skildu fyrir tveimur árum síðan.

Það sem hjálp­aði mér mest var að ég brotn­aði niður og byrj­aði að gráta.

„Skilnaður er eitthvað sem ég óska engum að ganga í gegnum en því miður ganga allt of margir í gegnum skilnað. Það sem hafði mest áhrif og sem hjálpaði mér mest var að ég brotnaði niður og byrjaði að gráta. Það er eitthvað sem ég hafði ekki gert frá því ég var 15 ára gamall. Og það í raun og veru kom mér í gegnum þetta. Og gerði mig heilan aftur.“

Hann segir að trúin á Guð hafi líka hjálpað sér. „Það var í raun og veru þessi grátur og að hafa Guð og einn eða tvo vini sína til að tala við og ræða við í gegnum allt þetta ferli.“

Örin

Og við bökkum enn lengra aftur í tíma. Svo langt aftur í tíma að allt í einu er Magnús tæplega 13 ára að drekka fyrsta sopann. Fyrsta brennivíns­sopann. Honum þótti sopinn svo góður að þeir Bakkus urðu félagar í tæpan áratug – en þótt honum fyndist sopinn góður þá var það þó reyndar ekki bragðið sem heillaði. Þetta bragð var beiskt.

„Ég var greindur með ADHD á fullorðins­árum. Áfengið róaði mig en ég notaði alltaf áfengi og eiturlyf sem flótta­leið frá sjálfum mér. Ég var alltaf á flótta frá lífinu og áfengi og eiturlyf gerðu mér kleift að flýja. Mér fannst áfengi aldrei vera gott á bragðið en það hjálpaði mér hins vegar að flýja.“

Ég gerði fimm sjálfs­morð­stil­raunir.

Hvað var það versta sem hann upplifði á neyslu­tímabilinu?

„Ég gerði fimm sjálfsmorðstilraunir og er ennþá með öll merki á höndunum. Ég er skorinn alls staðar; það er eitthvað sem ég ber með mér alla ævi. Þessi ör. Svo voru það innbrot og þjófnaðir og annað sem fylgdi þessu. Margir þeirra sem ég drakk með eru dánir. Fullur var ég lengst í rúma tvo mánuði í einu. Ég skaðaði aldrei aðra líkamlega en örugglega andlega og sálarlega. En líkamlega meiddi ég aldrei neinn svo ég muni allavega.“

Svo fór Magnús í meðferð 22 ára gamall. „Ég var númer 25 á Staðar­felli.“ Hann var 25. alkóhól­istinn sem fór þar í meðferð eftir að staðurinn var opnaður. „Ég kláraði ekki alveg meðferðina af því að ég þurfti að fara á sjóinn og það var veðmál um hversu lengi þessi drengur yrði edrú. Hvort ég myndi ná viku. Það er bara einn annar og ég sem eru edrú af þessari grúppu,“ segir Magnús sem hefur ekki drukkið dropa síðan en hins vegar migið oft í saltan sjó.

Hvað hjálpaði honum til að losna við Bakkus úr lífi sínu án þess að klára meðferðina þar sem hafið bláa hafið kallaði?

„AA samtökin hjálpuðu. Ég stundaði þau mikið. Ég vissi að ég fengi ekki annað tækifæri ef ég dytti í það. Menn voru að deyja í kringum mig sem voru að drekka með mér og ég vissi að ég hefði ekkert ótakmarkað þol til að drekka og ég vissi líka að einhvern veginn var ég farinn að vera þannig að ég var farinn að reyna að fremja sjálfs­morð þegar ég datt í það. Ég var líka að eyði­leggja líf annarra í kringum mig.“

Trúboð

Hann sem er þakinn örum á hand­leggjunum er með kross um hálsinn. Svolítið stóran kross.

„Ég trúi á Guð. Ég trúi á Jesú. Það byrjaði eftir að ég frelsaðist; 12 árum eftir að ég fór í AA samtökin. Ég hef verið á þessari göngu síðan. Fyrir Covid fór ég með félaga mínum þrisvar til fjórum sinnum á ári í um fjögur ár til Afríku til að vera í trúboði. Þetta fólst mest í að kenna fólkinu að gera hlutina sjálft; ekki gefa því bara peninga og hjálpa því þannig. Ég gaf til dæmis einum manni gítar og í dag á hann stúdíó og er kominn með íbúð bara af því að hann á hljóðfæri sem hann getur spilað á og fengið vinnu út af. Það þarf oft svo lítið til að hjálpa.“

Magnús segir að hann og félagi sinn hafi farið til Afríku á eigin vegum og að á tímabili hafi allur hans peningur farið í þessa ferðir. Hvers vegna?

„Það er einhver þrá eftir því að sjá fólk vaxa og líða vel. Mig langar til að sjá fólk vaxa. Það er það eina.“

Úganda. Kenía. Sambía. Rúanda. Suður-Afríka.

Hvað stendur upp úr í þessum ferðum?

„Þessi einlæga gleði fólksins. Mér líður vel þegar ég sé að fólki í kringum mig líður vel. Það var sönn gleði á flestum þessum stöðum.“

Hvað er Guð í augum Magnúsar sem ber stóran kross um hálsinn?

„Fyrir mér er Guð allt. Guð er kærleikurinn. Númer eitt er hann kærleikur. Einhver sem elskar mig og þig framar öllu öðru.“

Jú, Magnús S. Kristinsson kemur til Íslands í næstu viku með Norröna. Norrænu. Hann mun búa í forstofu­herbergi heima hjá vinafólki sínu þangað til hann finnur húsnæði og hann er ekki búinn að fá vinnu; hann sem vann sem strætis­vagna­bílstjóri í Svíþjóð og síðar sem yfirmaður hjá rútu­fyrirtæki nefnir að hann muni tala við rútu­fyrirtæki á Íslandi.

Mér finnst ég vera að gera rétt.

Hvernig er tilfinningin að vera að fara að flytja heim eftir 12 ár? „Hún er æðisleg. Ég er rosalega glaður yfir því að vera að koma heim. Mér finnst ég vera að gera rétt. Mér finnst þetta vera rétta skrefið.“

Hann er spurður hvort hann hefði áhuga á að aðstoða flótta­menn frá Úkraínu sem koma til Íslands. „Já, ef það væri í boði. Ég hef alltaf áhuga á að hjálpa fólki. Og vinna með fólki. Mér þykir vera gaman að hjálpa öðrum ef ég get það. Hvort það geri mig að góðum manni eða ekki veit ég ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá