Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Skálavarðahús rís í Vöðlavík: „Bendir allt til að aðsókn þetta sumarið verði með því allra mesta“

Skúmhöttur í Vöðlavík
Skúm­höttur í Vöðlavík Mynd: visitfjardabyggd.is

Nýtt skála­varðahús hefur verið reist í Vöðlavík í Fjarða­byggð. Fjarða­byggð veitti Ferða­félagi Fjarða­manna styrk upp á hálfa milljón króna vegna byggingar hússins í hinni fögru Vöðlavík.

Bygging skálans sjálfs er samkvæmt Austur­frétt, því sem næst lokið með hjálp nemenda í Verk­menntaskóla Austur­lands sem smíðað hafa húsið sem part af náminu.

„Þetta er náttúru­lega formlega orðið friðland þannig að þörfin á skála­verði þarna öllum stundum er mikil enda bendir allt til að aðsókn þetta sumarið verði með því allra mesta,“ segir Kamma Dögg Gísla­dóttir hjá Ferða­félagi Fjarða­manna í samtali við Austur­frétt.

Segir Kamma skálann breyta öllu því illa hafi gengið að ráða fólk til starfa til skála­vörslu í Vöðlavík vegna aðstöðu­leysis. Nú sé allt annað uppi á borðum, nú þegar ljóst er að skála­verðir fái gott skjól undir sig. Á auga­bragði hafi tekist að ráða í störfin en margir voru um hituna.

„Við munum svo flytja húsið á staðinn um miðjan júní eða svo, koma því fyrir og svo gerum við ráð fyrir að starfsemin hefjist svona um mánaðar­mótin júní, júlí. Það var töluverð aðsókn á síðasta sumri á staðinn en nú sýnist mér ljóst að mun fleiri ætli sér að skoða Vöðluvík en fyrri ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ