Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sólveig Anna harðorð í garð Drífu Snædal: „Starfsfólk hvatt til að sækja um störf að nýju“

Sólveig Anna Jónsdóttir/Drífa Snædal
Sólveig Anna Jóns­dóttir/Drífa Snædal

Sólveig Anna Jóns­dóttir hefur sent frá sér yfir­lýsingu þar sem hún mótmælir gagnrýni Drífu Snædal, forseta ASÍ, á þá ákvörðun stjórnar Eflingar að segja upp öllu starfs­fólki á skrif­stofu stéttar­félagsins.

Sólveig Anna segir að yfir­lýsingar Drífu séu órökstuddar. Um sé að ræða lýðræðislegar ákvarðanir stjórnar Eflingar „varðandi innri skipulagsmál á skrif­stofum félagsins.“

Í yfir­lýsingu Sólveigar Önnu segir að sú ákvörðun stjórnar Eflingar að segja starfs­fólkinu upp sé tekin á skýrum og málefna­legum grunni.

„Eru þær breytingar hugsaðar til að innleiða samræmi, jafnrétti og gagnsæi í launa­kjörum starfs­fólks, innleiða eðlilegt bil milli hæstu og lægstu launa á skrif­stofunum, og gera aðrar löngu tímabærar og nauðsynlegar breytingar á skipulagi.“

„Þetta er ömurlegur dagur“

Sólveig Anna vandar Drífu Snædal ekki kveðjurnar í yfir­lýsingu sinni. Sú síðarnefnda hefur, ásamt öðrum verkalýðs­leiðtogum, verið harðorð um þær hópuppsagnir sem boðaðar voru á skrif­stofu Eflingar.

Í samtali við frétta­stofu Vísis í morgun sagði hún að ákvörðun stjórnar stéttar­félagsins hafi komið sér á óvart. Drífa sagði verkalýðis­hreyfinguna hafa barist fyrir því lengi að koma í veg fyrir hópuppsagnir af þessu tagi.

„Þetta er ömurlegur dagur. Þarna er verið að svipta fólki afkomu­öryggi og atvinnu­öryggi. Þarna er verið að draga úr og veikja þjónustu stéttar­félagsins gagnvart félags­mönnum og veikja verkalýðs­baráttuna,“ sagði Drífa meðal annars í samtali við Vísi.

Segir Drífu ráðast á láglaunafólk

„Forseti Alþýðu­sambandsins hefur ekki haft fyrir því að leita upplýsinga eða skýringa frá formanni eða stjórn Eflingar, en hikar þó ekki við að fordæma opinber­lega þeirra störf í þágu félags­fólks í Eflingu,“ segir Sólveig Anna í yfir­lýsingu sinni.

„Það eru sorgleg nýmæli að forseti Alþýðusambandins ráðist á verka- og láglaunafólk í stjórn eins af aðildar­félögum ASÍ með þessum hætti.

Baráttu­listinn lýsti því yfir í kosninga­baráttu sinni að hann myndi gera nauðsynlegar breytingar á rekstri skrif­stofu Eflingar. Við það loforð verður staðið. Í því ferli sem nú stendur yfir er lögum og vinnu­brögðum sem við eiga fylgt í einu og öllu. Óhjákvæmilegt er að segja upp öllum ráðningar­samningum, en allt starfs­fólk verður hvatt til að sækja um auglýst störf að nýju.“

Sólveig Anna segir að nú standi yfir „lögbundið samráð við fulltrúa starfs­fólks“. Hún segir jafnframt að lögum samkvæmt fari slíkt fram í trúnaði.

„Formaður Eflingar harmar að aðilar hafi rofið trúnað, lekið gögnum í fjölmiðla og tjáð sig þar með óvarlegum hætti áður en því samráðs­ferli lauk,“ segir að lokum í yfir­lýsingunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá