Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Störfum í heilbrigðisþjónustu fjölgar á meðan önnur ríkisstörf standa í stað

Öldrun þjóðar og styttri vinnuvika vega þyngst

Ríkisstörfum fjölgar um 16%
Rík­is­störfum fjölgar um 16% Mynd: Unsplash/David Trinks

Stöðu­gildum hjá ríkinu fjölgaði um 16% á tíma­bilinu 2019 til 2025. Nýjar tölur sýna að vöxturinn liggur nánast eingöngu í grunn­þjónustu, þar sem heilbrigðis­kerfið vegur þyngst vegna lýðfræðilegra breytinga og tilfærslu verkefna. Á sama tíma hefur Hagstofan leiðrétt fyrri áætlanir um fjölgun ríkis­starfsmanna umtals­vert niður á við.

Heildar­fjölgun stöðu­gilda hjá ríkinu nemur 16% á árunum 2019–2025. Þegar gögnin eru skoðuð nánar kemur í ljós að heilbrigðis­þjónusta, öryggis­þjónusta og kennslu­tengd störf skýra samtals 93% af þessari aukningu. Heilbrigðis­þjónustan ein og sér dregur vöxtinn áfram og skýrir um 72% af heildar­aukningunni.

Aukninguna í heilbrigðis­kerfinu má rekja til skýrra lýðfræðilegra breytinga. Á meðan mann­fjöldi á Íslandi jókst almennt um 12,8% frá árunum 2019 til 2026, fjölgaði í aldurs­hópnum 60 ára og eldri um 22%. Mesta aukningin var í aldurs­hópnum 70 til 79 ára, en sá hópur stækkaði um 35% á tíma­bilinu. Samhliða þessari öldrun þjóðarinnar hafa verkefni tengd öldrunar­þjónustu færst frá sveitar­félögum til ríkisins, auk þess sem framboð á launuðum náms­stöðum í heilbrigðis­þjónustu hefur verið aukið.

Lítill vöxtur í stjórnsýslu og öðrum störfum


Á meðan grunn­þjónustan stækkar hratt er staðan önnur í öðrum geðum ríkisins. Önnur störf en heil­brigðis-, öryggis- og kennslu­störf telja um helming allra ríkis­starfa, en þar nam fjölgunin aðeins 2% á sama sex ára tímabili.

Fjölgun stöðu­gilda ríkisins var mest á árunum 2021 og 2022, í miðjum heims­faraldri. Samhliða þeim áskorunum stóð yfir innleiðing á styttingu vinnu­vikunnar, þar sem vinnutími vakta­vinnufólks fór úr 40 stundum í 36 stundir á viku. Sú breyting kallaði á aukna mönnun og fjölgaði stöðu­gildum í vakta­vinnu um 28%, á meðan dagvinnu­störfum fjölgaði um 13%. Ef tekið er tillit til þess að vinnu­stundum á bak við hvert ársverk fækkaði, er raun­veruleg aukning ríkis­starfa umtals­vert minni.

Hagstofan leiðréttir tölur sínar


Hagstofan hafði áður áætlað að ríkis­starfs­mönnum hefði fjölgað um 4,7% á milli maí 2025 og maí 2026. Nýjustu uppfærslur sýna hins vegar að fjölgunin nam í raun 2,6%. Gögn úr launa­kerfi ríkisins sýna áþekka þróun, eða um 2,1% breytingu á sama tímabili. Leið­réttingar Hagstofunnar ná einnig til starfa í opinberri þjónustu sem birtust í riti Seðla­bankans, Peninga­málum, í mars síðastliðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá