Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þórdís súr og svekkt út í MS: „Þetta er ógeðslegt!“

Höfuðstöðvar MS
Höf­uð­stöðvar MS Mynd: ms.is

Þórdís nokkur er hundfúl í MS eftir nýleg viðskipti við fyrir­tækið og svör þess þegar hún leitaði til þeirra óánægð. Hún keypti ost af fyrir­tækinu sem hún segist geta rotað einhvern með þrátt fyrir að eiga ekki að renna úr fyrr en um miðjan mánuðinn.Þórdís fjallar um óánægju sína í fjölmennu samfélagi matgæðinga á Facebook, Matartips! Þar segir hún:

„Þessi ljótur er merktur útrunninn um miðjan mars. Ég gæti gatað vegginn hjá mér með honum eða rotað einhvern. MS segir að hann eigi að líta svona út. Hann eigi að vera grænn og grjót­harður með hvíta loðna myglu­bletti. Eins og ég hafi aldrei keypt hann áður eða borðað,“ segir Þórdís.

MS segir við Þórdísi að svona eigi ost­ur­inn að vera. Hvað segja neyt­endur um það?

Fjölmargir meðlimir samfélagsins tjá sig um ostinn og viðskipta­hætti MS. Auður er ein þeirra sem á varla til orð. „Þetta er ógeðslegt! En Ms virðist vera skítsama þó að vörur séu gallaðar þe ógeðslegar. Ég veit um nokkur dæmi þar sem sá sem svarar kvörtunum segir að ekkert sé að vöru,“ segir Auður.Bryndís er líka mjög hissa. „Myndi fara með hann í MS og láta þá borða þetta fyrir framan þig, ætti ekki að vera vandamál fyrst hann á að vera svona,“ segir Bryndís.  Og Elva nokkur tekur í sama streng. „Oj bara. Þetta lítur út eins og glæpa­vettvangur. Vantar bara lögreglu­borðann.“Á endanum blandaði markaðs­stjóri osta- og smjörvara MS sér í umræðuna, Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir. Hún bað Þórdísi um að koma með ostinn í höfuð­stöðvar til að geta metið hann. „Þessi ostur lítur verr út en ætla mætti hvað Ljót varðar, líkur eru á að myglan hafi náð yfir­höndinni í þessu eintaki. Við munum skipta honum út fyrir annan ost og bæta þér ómakið. Þessi ostur er ekki i lagi sýnist mér á myndinni og okkur þykir leiðinlegt að þú hafir fengið gallaða vöru,“ segir Guðbjörg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá