Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Biðlistar lengjast og vandi eykst

Þúsundir barna í langri bið eftir aðstoð
Þúsundir barna í langri bið eftir aðstoð Mynd: Shutterstock

Nýjustu tölur Umboðs­manns barna sýna alvarlega stöðu í heil­brigðis- og greiningar­kerfinu. Þúsundir barna bíða mánuðum eða árum saman eftir nauðsynlegri greiningu og meðferð. Umboðs­maður barna Salvör Nordal skorar á stjórn­völd að setja mála­flokkinn í algjöran forgang.

Umboðs­maður barna hefur birt upplýsingar um bið barna eftir þjónustu í tíunda sinn. Niður­stöðurnar sýna að þrátt fyrir fyrirheit stjórn­valda og talsverða umræðu í samfélaginu hefur staðan víða farið versnandi. Gríðar­legur fjöldi barna situr fastur á biðlistum sem lengjast mánuð frá mánuði.

Yfir 2.700 börn bíða hjá Geðheilsumiðstöð barna

Þunginn er mestur hjá Geðheilsu­miðstöð barna þar sem alls 2.705 börn bíða nú eftir greiningu. Þar af hefur mikill meirihluti, eða 2.591 barn, beðið lengur en þrjá mánuði. Börnum á biðlistanum hefur fjölgað um 252 síðan í febrúar og þeim sem hafa beðið lengur en þrjár vikur hefur fjölgað um 691 á sama tímabili. Staðan er svipuð hjá öðrum lykil­stofnunum:

  • Ráðgjafar- og greiningarstöð: 774 börn eru á biðlista og hafa 697 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði.
  • Göngu­deild BUGL: Þar bíða 42 börn og hafa 31 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Til saman­burðar hafði ekkert barn beðið svo lengi í febrúar síðastliðnum.
  • Heilbrigðis­stofnun Norður­lands: Meðalbið eftir sálfræði­þjónustu er nú 428 dagar og hafa 165 af 206 börnum á listanum beðið lengur en þrjá mánuði.

Jákvæð teikn inn á milli en heildarmyndin alvarleg

Þótt útlitið sé dökkt á stóru stofnununum má sjá jákvæðar breytingar á einstaka stöðum. Börnum sem bíða eftir meðferð í Barnahúsi hefur fækkað og þá hafa biðlistar styst hjá Heilsu­skólanum. Hinar almennu tölur sýna hins vegar að kerfið hrópar á mark­vissar og samræmdar aðgerðir.

Snemmtæk íhlutun í hættu

Salvör Nordal, umboðs­maður barna, segir stöðuna óviðunandi og bendir á afleiðingar þess að láta börn bíða mánuðum eða árum saman eftir aðstoð.

„Á meðan börn bíða mánuðum og jafnvel árum saman getur vandi þeirra aukist og tækifæri til snemm­tækrar íhlutunar glatast,“ segir Salvör.

Hún sendir skýr skilaboð til ráðamanna:

„Embætti umboðs­manns barna skorar á stjórn­völd að setja í algjöran forgang að stytta bið barna og tryggja að börn fái þá þjónustu sem þau þarfnast, þegar þau þurfa á henni að halda.“

Nánari sundur­liðun á tölfræðinni og stöðunni á hverri stofnun fyrir sig má finna á vefnum barn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá