Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gagnrýni á starfsemi Vöggustofanna: „Ljótar lýsingar komið fram á aðbúnaði barna sem þar dvöldu“

Mikil gagnrýni hefur verið á starfsemi vöggu­stofanna og ljótar lýsingar komið fram á aðbúnaði barna sem þar dvöldu. Sumarið 2021 fóru fimm einstaklingar sem höfðu dvalið á vöggu­stofunum þess á leit við borgar­stjórn að koma á fót teymi sérfræðinga til að rannsaka starfsemi Vöggu­stofunnar að Hlíðar­enda og Vöggu­stofu Thorvaldsensfélagsins á árunum 1949-1973.

Á fundi borgar­ráðs 22. júlí 2021 var samþykkt tillaga stað­gengils borgar­stjóra um að farið yrði þess á leit við forsætis­ráðherra að fram færi heildstæð athugun á starfsemi Vöggu­stofunnar að Hlíðar­enda og Vöggu­stofu Thorvaldsensfélagsins og eftir atvikum annarra vöggu­stofa á tilteknu tímabili.

Í framhaldi af því að Reykja­víkurborg sendi forsætis­ráðuneytinu erindi þessa efnis kom sú afstaða í ljós í samtölum borgar­stjóra og forsætis­ráðherra að athugun á starfsemi vöggu­stofanna væri best fyrir komið með þeim hætti að Reykja­víkurborg sinnti henni. Á hinn bóginn myndi forsætis­ráðuneytið liðsinna Reykja­víkurborg við að fá fram nauðsynlegar breytingar á lögum til að slík úttekt geti náð fram að ganga.

Borgarráð samþykkti loks í vikunni að setja á stofn nefnd þriggja óháðra sérfræðinga sem hafi það verkefni að gera heild­stæða athugun á starfsemi Vöggu­stofunnar að Hlíðar­enda og Vöggu­stofu Thorvaldsensfélagsins sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld. Þá segir í frétt inn á síðu Reykja­víkurborgar að unnið sé í samráði við forsætis­ráðuneyti að útvega nauðsynlegar laga­heimildir fyrir vinnu nefndarinnar.

Í fréttinni segir að Reykja­víkurborg hafi talið vera fullt tilefni til að koma á laggirnar nefnd til að rannsaka starfsemi Vöggu­stofunnar að Hlíðar­enda og Vöggu­stofu Thorvaldsensfélagsins þann tíma er þær voru starf­ræktar í Reykjavík. Með samþykkt sinni í vikunni hafi verið lagður grunnur að starfsemi nefndarinnar. Þar segir ennfremur að unnið sé að tilnefningum í nefndina og mun nefndin taka til starfa þegar þær liggja fyrir. Í forsætis­ráðuneytinu er jafnframt unnið að frumvarpi um nauðsynlegar laga­heimildir fyrir vinnu nefndarinnar en fram að því mun nefndin undirbúa úttektina.

Markmið og meginverkefni nefndarinnar samkvæmt frétt Reykjavíkurborgar

a. Að lýsa starfsemi vöggu­stofanna, hlutverki þeirra í barna­verndar- og/eða uppeldis­málum og tildrögum þess að börn voru vistuð þar á því tímabili sem um ræðir.

b. Að leitast við að staðreyna eins og kostur er hvort og þá í hvaða mæli börn sem vistuð voru á stofnuninni hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi meðan á dvölinni stóð.

c. Að lýsa því hvernig eftirliti Reykja­víkurborgar og ríkisins með vöggu­stofunum var háttað.

d. Að lýsa öðrum atriðum sem tengjast starfsemi vöggu­stofanna og nefndin telur þarfnast skoðunar.

e. Nefndin skal skila skýrslu um störf sín til borgar­ráðs.

f. Leggja grundvöll að tillögum til borgar­ráðs um frekari viðbrögð ef ástæða þykir til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá