Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fimm atriði sem starfsmenn þurfa að hafa í huga til að forgangsraða heilsu og vellíðan

Ingrid Kuhlman ræddi um í grein sinni um það hvernig starfs­menn séu farnir að forgangs­raða heilsu sinni og vellíðan.

„Þegar við hægðum aðeins á okkur vegna heims­faraldursins fengu margir rými til að líta inn á við, endurmeta líf sitt og skoða áhrif starfs síns á andlega heilsu og líðan. Margir fundu fyrir löngun til að finna meiri lífs­fyllingu í lífi og starfi. Könnun Pew Research Center leiddi í ljós að meira en helmingur þeirra sem hættu störfum árið 2021 gerðu það vegna þess að þeir upplifðu skort á virðingu eða töldu sig ekki hafa næg tækifæri til að þróast í starfi. Aðrar ástæður voru skortur á sveigjanleika, of langir vinnu­dagar og umönnunar­vandamál.

Líklega mun þessi mikla breyting marka þáttaskil fyrir framtíð vinnunnar. Hún sendir vinnu­veitendum skýr skilaboð. Ef vinnu­staðir vilja halda í samkeppnis­hæfustu starfs­mennina munu þeir þurfa að breyta menningu sinni í þágu samþættingar starfs og einkalífs og sveigjanleika. En hvað getur hún kennt starfs­mönnum um það hvernig störf þeirra samræmast því hvernig þeir vilja lifa lífinu? Hér eru fimm atriði sem starfs­menn þurfa að hafa í huga:

1. Kulnun er ekki sjálfbær
Að sögn American Psychological Assiciation upplifðu margir bandarískir starfs­menn kulnun á árunum 2020 og 2021. Í könnun félagsins á vinnu og vellíðan frá 2021 greindu 36% svarenda frá vits­munalegri þreytu, 32% sögðust upplifa tilfinninga­lega þreytu og 44% greindu frá líkamlegri þreytu, sem er 38% aukning frá 2019.

Fyrir heims­faraldurinn gætu sumir hafa sætt sig við stans­lausa streitu og mögu­leikann á kulnun en núna hafa margir áttað sig á því að vinnu­staður sem reiðir sig á útkeyrðum og útbrunnum starfs­mönnum er ekki sjálfbær til lengri tíma litið. Auk þess kemur þetta í veg fyrir að við getum blómstrað á öðrum sviðum lífsins. Síðustu tvö ár hafa því kennt vinnu­stöðum, stjórn­endum og starfs­mönnum mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér og finna vinnu- og lífshætti sem þjóna þeim betur.

2. Persónuleg ábyrgð er lykil­atriði
Heims­faraldurinn kenndi okkur að það að forgangs­raða þörfum okkar eykur ekki bara vellíðan heldur stuðlar líka að betri frammistöðu. Sýn okkar á samþættingu starfs og einkalífs hefur breyst og við þurfum að spyrja okkur hvernig við getum blómstrað óháð því sem við kunnum að lenda í. Fyrir suma hefur það að blómstra þýtt að hefja nýjan starfs­feril eða finna nýjan vinnustað. Persónuleg ábyrgð okkar felur í sér að taka skref til baka, íhuga málin og forgangs­raða í þágu heilsu og vellíðanar.

3. Við búum yfir meiri seiglu en við héldum
Það getur verið ógnvekjandi að yfirgefa starf sem þú hafðir náð góðum tökum á og þekkingu til að sinna. Það krefst líka hugrekkis að tjá sig um þarfir sínar við yfirmann. Heims­faraldurinn hefur verið mikið námskeið í seiglu og aðlögunar­færni og þessa reynslu er hægt að nota til að gera nauðsynlegar breytingar, hvort sem það er að skipta um starf eða ræða við yfirmann um líðan sína og þarfir.

4. Starfs­menn hafa sterkari samnings­stöðu
Þar sem margir vinnu­staðir hafa misst starfs­menn frá sér undan­farið eru starfs­menn komnir með nýja og sterkari samnings­stöðu til að hanna starfs­feril sem gerir þeim kleift að búa til rými fyrir það sem þeir óska eftir í lífi og starfi. Þegar öllu er á botninn hvolft vilja stjórn­endur og vinnu­staðurinn halda í samkeppnis­hæfa starfs­menn og ná fram því besta hjá öllum starfs­mönnum. Það er því þess virði að koma á framfæri hvað muni hjálpa þér við að komast á þann stað, hvort sem það er með aðgangi að geðheil­brigðis­þjónustu, því að fá að taka reglulega andlegan heilsudag, sveigjanleika í vinnutíma og því hvar þú vinnur verkefnin af hendi eða hægfara endurkomu­áætlun á skrif­stofuna eftir faraldurinn.

5. Félagsleg tengsl skipta öllu
Á meðan á heims­faraldrinum stóð varð eitt ljóst: Tengsl okkar við aðra skipta sköpum fyrir hamingju okkar. Við upplifðum tölu­verðar takmarkanir á félags­legum samskiptum og það hafði neikvæð áhrif á andlega heilsu okkar. Það er því mikilvægt að hafa tengslin við okkar nánustu í huga í vinnu­sambandinu. Við ættum ekki að upplifa skömm eða ótta við að taka frí til að fara á tónleika barnanna okkar eða stimpla okkur fyrr út til að njóta kvöld­verðar með fjöl­skyldunni. Það eru jú þessu tengsl sem veita okkur orku og fá okkur til að standa okkur vel í vinnunni.“

Hægt er að lesa greinina í heild sinni inn á síðu Þekkingar­miðlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá