Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sanna ætlar aftur fram í borginni: „Óréttlætið, fátæktin og húsnæðisskorturinn er enn til staðar“

Sanna Magdalena. Mynd / Skjáskot úr myndbandi Sósíalistaflokksins
Sanna Magda­lena. Mynd / Skjáskot úr mynd­bandi Sós­í­alista­flokks­ins

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­stjórnar­fulltrúi Sósíalista­flokksins ætla að gefa kost á sér aftur í komandi borgar­stjórnar­kosningum. Birti hún tilkynningu þess efnis í Facebook hóp Sósíalista­flokksins.

Fyrir stundu tilkynnti Sanna Magndalena Mörtu­dóttir að hún hygðist bjóða sig til áfram­haldandi setu í borgar­stjórn Reykja­víkur. í Tilkynningunni segir hún að óréttlætið, fátæktin og húsnæðis­skorturinn sé enn til staðar í borginni og að stéttar­skiptingin blasi við fái að viðgangast óáreitt af yfir­völdum. Þá kemur hún einnig inn á ofurlaun forstjóra og stjórnmála­fólk sem fái reglulegar launa­hækkanir á meðan fátækir borgar­búar er sagt að reiða sig á matar­úthlutanir frá góðgerða­samtökum. Hér fyrir neðan er tilkynning í heild sinni:

Kæru félagar og Reyk­víkingar, ég gef kost á mér til áfram­haldandi setu í borgar­stjórn Reykja­víkur. Vorið 2018 tók ég að mér verkefni. Því er ekki lokið. Óréttlætið, fátæktin og húsnæðis­skorturinn er enn til staðar. Stétta­skiptingin blasir við okkur og fær að viðgangast óáreitt af yfir­völdum. Laun forstjóra sem starfar í fyrirtæki í eigu borgarinnar hækkar um margar milljónir á einu ári, á meðan að fátækustu borgar­búum er gert að reiða sig á matar­úthlutanir frá góðgerða­samtökum. Á meðan að stjórnmála­fólk fær reglulegar launa­hækkanir áreynslu­laust, þurfa láglaunahópar að leggja niður störf til að fá viðurkenningu á starfs­framlagi sínu. Starfs­framlagi sem skiptir öllu máli við að halda borginni gangandi.

Gjaldtaka fer fram á ótrúlegustu stöðum þar sem fjármagns­eigendur eru undan­þegnir því að greiða til samfélagsins. Reykja­víkurborg rukkar börn fyrir þjónustu sem á að vera gjald­frjáls. Ef börn koma frá efna­litlum heimilum þar sem fjöl­skyldur hafa ekki burði til að greiða reikninga, er innheimtu­fyrirtækjum sigað á fjöl­skyldurnar. Börn læra snemma að full þátttaka innan samfélagsins stendur þeim ekki til boða.

Reykjavík á að vera fyrir okkur öll en hún er það ekki. Húsnæði á að standa okkur öllum til boða en sú er ekki raunin. Ég neita að búa í samfélagi þar sem brotið er á mann­réttindum fólks og því neitað um rétt til að búa við öruggt húsaskjól og öruggar mann­sæmandi aðstæður. Þess vegna held ég áfram í þeirri sósíal­ískri baráttu sem ég er í. Ég viðurkenni að það getur verið erfitt að starfa innan veggja Ráðhússins þar sem viðurkenning á vandanum er ekki til staðar. Í þau skipti sem reiðin hefur náð mér hef ég bitið fast á jaxlinn og haldið tárunum inni í augunum svo þau renni ekki niður á kinn.

Borgar­búar eiga ekki að þurfa að búa við óöryggi og þann skaða sem hlýst af því að ekki var gripið inn í aðstæður þar sem hægt var að grípa inn í. Við verðum að byggja upp gott samfélag, þar sem grunn­þörfum allra er mætt. Til þess þurfum við að hlusta á raddir og reynslu þeirra sem best þekkja til hverju sinni og ég er þakklát fyrir öll samtölin sem ég hef átt við borgarbúa, starfs­fólk og allt það fólk sem veit hvað þarf að bæta innan borgarinnar.

Við verðum að byggja góðan grunn, til að tryggja að hér getum við öll átt gott líf til að vaxa og dafna.

Baráttu­kveðja, Sanna sósíal­isti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá