Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Íslenskukennsla erlendra nemenda: „Tónlistin kemur þeim öllum svolítið á óvart.“

Þráinn Árni Baldvinsson er með mörg járn í eldinum en hann rekur eigin tónlistar­skóla og kennir auk þess í nokkrum skólum, svo sem Norðlinga­skóla þar sem tónlist er notuð í íslensku­kennslu erlendra nemenda. „Við þurfum að geta boðið upp á eins margar kennslu­aðferðir og mögulegt er,“ segir Þráinn í samtali við Kennara­samband Íslands.

Þráinn segir að þegar kemur að íslensku­kennslu erlendra barna í Norðlinga­skóla sé almennt lögð áhersla á að styðja við nemendur.

„Þetta er aðferð sem hentar sérstak­lega vel með yngri börnunum. Eldri nemendur eru aðeins tregari í taumi, en tónlistin kemur þeim öllum svolítið á óvart. Þeir reikna með að íslensku­kennslan sé í hefð­bundinni kennslu­stofu; stóll og borð. Þetta umhverfi, tónlistar­stofan, virkar vel. Ég held að það sé hægt að nota þessa aðferð alls staðar, svo sem í heimilis­fræði­stofu og smíða­stofu, en reynsla okkar, sem er reyndar ekkert mikil ennþá, er sú að þeim mun fyrr sem við byrjum, það er að segja þeim mun yngri sem börnin eru, þeim mun betur gengur. Unglinga­deildin er erfiðari, en ég held að það sé kannski bara eitthvað sem við getum unnið betur með; yngri eintökin voru svo svakalega jákvæð og móttækileg að allar hindranir með eldri krökkunum voru í okkar huga stærri en þær í raun voru.“

Hver eru viðbrögð foreldra barnanna og auðvitað barnanna sjálfra varðandi þessar áherslur í íslensku­kennslu?

„Krakkarnir sem eru ekki lengur í Tónabrú koma reglulega upp að mér á göngum skólans og spyrja hvenær þeir fái að mæta aftur til mín og Erlu. Það eru bestu meðmæli sem hægt er að fá. Foreldrar sem við höfum talað við eru allir í skýjunum með þetta. Ég held við þyrftum að vera með foreldrana enn betur innvinklaða í þetta því krakkarnir ræða auðvitað við foreldra sína þegar þeir koma heim. Það er næsta mál á dagskrá hvernig við náum foreldrunum í námið með krökkunum.“

Hægt er að lesa viðtalið heild sinni HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá