Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

„Það eru engir femínistar á Spáni“: Höfundur athugasemdar um Lenyu – „í rúminu“ – krafinn svara

Mannlíf fer nú af stað með reglulega liðinn „Kommentin krufin“. Þar verða kimar athugasemda­kerfisins skoðaðir og athuga­semdir kannaðar sem vakið hafa mikla athygli eða þykja umdeildar, tilurð þeirra og hvað fyrir höfundum þeirra vakti.

Samfélags­miðlar skipa æ stærri sess í samfélaginu og vægi þeirra hefur aukist að sama skapi. Athugasemda­kerfi frétta­miðla hafa löngum verið alræmdir forar­pyttir þar sem öllu er slengt fram; fordómum, sleggju­dómum og almennum dónaskap, svo eitthvað sé nefnt.

Facebook og Twitter eru hvað vinsælastir samfélags­miðla hvað þetta varðar.

Lenya Rún Taha Karim, vara­þingmaður Pírata, birti nýverið skilaboð sem karlmaður lét falla um hana í athugasemda­kerfi á Facebook. Þar skrifar Facebook-notandinn Steinar Harðarson að Lenya Rún sé villt. Jósep Þorbjörnsson bætir þá við: „Í rúminu“.

Umrædd athuga­semd.

Mannlíf hafði samband við Jósep, sem áður var eigandi skemmtistaðarins Traffic í Reykja­nesbæ, og spurði hann hvað fyrir honum hefði vakið þegar hann skrifaði athugasemdina.

„Þetta var bara grín hjá mér. Ég þekki hana ekkert og veit ekki hver þetta er einu sinni.“

Inntur frekar eftir því hvað vaki fyrir honum við skrif athugasemda af þessu tagi ítrekaði hann að um grín hefði verið að ræða. „Hann skrifaði „hún er villt“ – þá bætti ég bara þessu við.“

Aðspurður hvort honum þætti athugasemdin viðeigandi sagði hann að hún væri einfalt grín. „Eru allir femínistar á Íslandi orðnir svona… er allt orðið svona slæmt á Íslandi, eða?“

Engir femínistar á Spáni

„Ef einhver maður segir eitthvað grín þá er þetta bara orðið alvarlegt mál,“ sagði Jósep, aðspurður um hvað hann ætti við.

„Sem betur fer bý ég ekki á Íslandi.“

Nú, hvar býrðu?

„Ég bý á Spáni.“

Er ástandið allt annað þar?

„Já, það eru engir femínistar á Spáni.“

Engir femínistar á Spáni?

„Ekki eins mikið og á Íslandi.“

Og ertu ósáttur við femínista á íslandi?

„Nei, nei, ég skipti mér ekki af því. Kemur mér ekkert við. Ég þekki marga hægri, vinstri og allt. Það eru margir góðir og margir slæmir.“

Þegar maður skilur eftir svona athugasemd, þá er hún opinber.

„Já, ég veit það. Á Facebook.“

Nú erum við náttúru­lega að tala um konu sem hefur orðið fyrir talsverðu áreiti í svona opnum kommenta­kerfum. Vara­þingkonu.

„Já, já, þetta var bara einfalt grín. Ég meinti ekkert slæmt með þessu.“

Hefðirðu grínast á sama hátt ef um karlmann hefði verið að ræða?

„Já, já. Það skiptir mig engu máli hvort það sé karlmaður eða kvenmaður. Ég hef ekkert slæmt um þessa konu að segja því ég þekki hana ekki – ég veit ekki einu sinni hver þetta er.“

Geturðu skilið að það komi kannski illa við hana að lesa svona komment?

„Það getur vel verið. Þá bara skrifa ég ekkert svona aftur um einhverja konu.“

Það er kannski eitthvað til að velta fyrir sér.

„Já já, ég meinti ekkert slæmt með þessu. Ég bara sá þetta, hann skrifar „hún er villt“. Ef þetta hefði verið karlmaður og það hefði verið sagt „hann er villtur“, þá hefði ég gert það sama.

Ég hef ekkert á móti neinum þarna á Íslandi. Þetta var kannski fljót­færni, af því þetta er alþingis­kona og hún er að vinna fyrir þjóðina. Þá er auðvitað betra að skrifa ekkert svona um konu sem er í svona vinnu,“ segir Jósep að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá