Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sólveig Anna ævareið vegna færslu Jóhanns Páls þingmanns: Hefur sýnt „helsjúka valdníðslu“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­verandi og verðandi formaður Eflingar, er allt annað en ánægð með Facebook-færslu Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, alþingis­manns Samfylkingar, um nýkjörið verkalýðsmálaráð Samfylkingar. Sérstak­lega fara síðustu orð hans um átökin innan hreyfingarinnar fyrir brjóst Sólveigar Önnu og félaga

„Þú flokkar semsagt viðbjóðs­legan rógburð og grófa aðför að mannorði fólks í pólitískum tilgangi sem ekkert annað en „átök“?“ segir Sólveig í athugasemd við færsluna.

„Finnst þér í alvöru ekkert rangt við það að ráðist sé að heiðvirðu fólki sem hefur ekki gerst sekt um annan „glæp“ en að vinna umbeðna vinnu á meðan það jafnframt hefur „óæskilegar“ pólitískar skoðanir, líkt og Andri Sigurðsson hefur nú þurft að þola af hálfu þeirrar konu sem þú hrífst svo af?“

Andri var mikið til umfjöllunar í byrjun mánaðarins í tengslum við umfjöllun vefsíðu Eflingar. Greint var frá því að Andri hafi fengið rúmlega 20 milljónir greiddar fyrir að hanna vefsíðuna en fjölmargir gagnrýndu það, bæði vegna upphæðarinnar en einnig þar sem Andri er félagi í Sósíalista­flokknum og hefur mikið barist gegn spillingu.

Sólveig veltir því þá fyrir sér hvers vegna Jóhann er ánægður með að fá Agnieszku til liðs við sig. „Af hverju ertu „gríðar­lega ánægður“ með að fá manneskju til starfa í flokknum þínum sem hefur í besta falli sýnt algjör­lega yfirgengilegt dómgreindar­leysi og í versta falli algjör­lega helsjúka vald­níðslu á sínum skamma tíma í embætti?“ segir hún.

Færsla Jóhanns

„Auðvitað tekur Samfylkingin reynslu­miklu fólki úr verkalýðs­hreyfingunni fagnandi. Við drögum fólk ekki í dilka eða útilokum vegna átaka innan hreyfingarinnar – kemur ekki til greina. Hlakka til samstarfsins við nýja stjórn verkalýðs­mála­ráðs,“segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Jóhann birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hann segist vera gríðar­lega ánægður með nýkjörna stjórn verkalýðs­mála­ráðs Samfylkingarinnar.

Þessir tveir forsetar sem um ræðir eru þau Kristján Þórður Snæbjarnarson, 1. vara­forseti ASÍ og formaður Rafiðnaðar­sambands Íslands og Halldóra Sigríður Sveins­dóttir, formaður Bárunnar og 3. vara­forseti ASÍ.

Þá voru einnig kjörin Agnieszka Ewa Ziółkowska, starfandi formaður Eflingar, Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðs­félags Vestfirðinga og Gylfi Þór Gíslason, fyrr­verandi stjórnar­maður í Lands­sambandi lögreglu­manna.

„Það markar ákveðin tímamót að tveir af fjórum forsetum Alþýðu­sambands Íslands gegni nú trúnaðar­störfum fyrir jafnaðar­manna­flokk Íslands og viðeigandi að þetta skuli gerast á 106 ára afmæli Alþýðu­sambandsins og Alþýðu­flokksins.“

Undir lok færslunnar segir Jóhann að Samfylkingin útiloki ekki vegna átaka innan hreyfingarinnar. Hann tekur ekki fram um hvaða átök hann er að tala um en líklega er hann þó að vísa í átökin sem hafa átt sér stað innan Eflingar að undan­förnu.

Gagnrýnir Jóhann

Sólveig er ekki sú eina sem tekur til máls í athugasemda­kerfinu en fjölmargir stuðnings­menn hennar gera það einnig og hjóla í Jóhann vegna orða hans um átökin. Í einni athugasemdinni segir til að mynda að færsla Jóhanns sé „bein stríðs­yfirlýsing“ á hendur „stærsta alvöru verkalýðs­félagi landsins“.

Einn meðlimur Sósíalista­flokksins veltir því þá fyrir sér hvers vegna Halldóra Sigríður var kjörin vegna þess sem hún sagði í kjölfar frétta­flutningsins um vefsíðu Eflingar. „Ef það er verið að brjóta lög er það mjög al­var­leg­ur hlut­ur,“ sagði Halldóra meðal annars um málið.

„Var Halldóra ekki að úthúða Sólveigu Önnu og Víðari um að hygla Andra fyrir vefsíðu­gerð?“ spyr sósíal­istinn í athugasemdinni sem um ræðir. „Og ekkert á rökum reist. Og mér sýnist þetta fólk hafa þræði til gömlu hirðar Ásmundar og Salek. Þetta er ekki progressive. En það ert þú hinsvegar á Alþingi.“

Jóhann svarar athugasemdinni frá sósíal­istanum og segir að jú, Halldóra Sigríður hafi tjáð sig um vefsíðu-málið í fjöl­miðlum.

„Get samt alls ekki fallist á að þá verði Halldóra einhvern veginn geisla­virk og persona non grata og að stjórn­málaflokkar eigi að halda henni utan grasrótar­starfs, hugnast alls ekki svoleiðis nálgun,“ segir hann svo. Þá segir Jóhann að hann gruni að Halldóra hafi ekki verið kosin vegna skoðunar hennar á Eflingu.

„Mig grunar reyndar að Halldóra hafi fengið góða kosningu vegna þess að hún er 3. vara­forseti ASÍ og leiðtogi stórs stétta­félags frekar en vegna deilna um Eflingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá