Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Mosfellingar með fólk á öllum aldri – ,,Miðflokkurinn – Fyrir lifandi bæ“

Miðflokkurinn sendi frá sér frétta­tilkynningu þar sem nýr listi stjórnar er kynntur. Á listanum er fólk á öllum aldri en ber hann yfir­skriftina: ,,Miðflokkurinn – Fyrir lifandi bæ“.
Hér að neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni:

Miðflokkurinn býður fram lista fyrir komandi sveita­stjórnar­kosningar í vor með yfir­skriftinni ,,Miðflokkurinn – Fyrir lifandi bæ“. Listann skipar fólk á öllum aldri. Uppstillinga­nefnd Miðflokksins í Mosfellsbæ lagði fram nýjan lista fyrir stjórn deildarinnar í Mosfellsbæ sem samþykkti hann og á opnum deildar­fundi félagsins í Listasal Mosfells­bæjar 24. mars síðastliðinn og var hann samþykktur þar. Síðar var hann tekinn fyrir í stjórn Kjördæma­félags Miðflokksins og samþykktur samhljóða.

Oddviti listans er Sveinn Óskar Sigurðsson bæjar­fulltrúi Miðflokksins í Mosfellsbæ. Örlygur Þór Helgason kennari og vara­bæjar­fulltrúi flokksins skipar annað sætið, Sara Hafbergs­dóttir, rekstar­stjóri þriðja og fjórða sætið skipar Helga Diljá Jóhanns­dóttir dýra­læknir.

Á síðasta deildar­fundi félasins var kynnt stefnan sem byggist á eftir­farandi: (1) Börn og barnafólk í forgrunn. Stórefla á mennta- og íþróttamál í bænum. (2) Fólk í forgang, ekki á biðlista. Unnið verður að raun­verulegri farsæld og velferð fyrir öll börn, fatlaða, öryrkja og eldri borgara. (3) Sunda­braut í forgang. (4) Skipulagsmál og stjórn­sýsla gerð skilvirk. (5) Urðun hætt í Álfsnesi. (6) Fjármál sveitar­félagsins tekin til skoðunar. (7) Þéttinga­stefnan endur­skoðuð. (8) Öryggi bæjarbúa eflt og umhverfið sett í öndvegi.

Miðflokkurinn er heil­steyptur flokkur og stendur við gefin fyrirheit. Lista flokksins fyrir næst­komandi sveita­stjórnar­kosningar skipar venjulegt, vel meinandi og heil­steyptur hópur fólks á öllum aldri. Meðal­aldur listans er 53 ár, sá yngsti á listanum og skipar 5. sæti er 19 ára og sá elsti 77 ára. Konur skipa 45% af listanum, karlar 55%.

Orð frá fram­bjóðanda í 5. sæti.

Vil taka þátt í samfélaginu

Með þátttöku minni í framboði Miðflokksins vil ég taka þátt í samfélaginu í Mosfellsbæ, tryggja faglega umræðu og virðingu fyrir bæjarbúum, þörfum þeirra, væntingum og velferð. Ég mun leggja áherslu á að ungt fólk fái notið sín í samfélaginu okkar, að eldra fólki sé tryggð velferð og að skólarnir, bæði leik- og grunn­skólar verði enn betri en í dag. Fræðslumál þurfa í meira mæli að snúa um tækifæri ungs fólks og hæfni þeirra til að koma sér fyrir í flóknum heimi. Því verðum við að styrkja skóla og þær stofnanir sem æska landsins byggir velferð sína á.

Helga Diljá Jóhanns­dóttir, dýra­læknir, skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ

Kjósendur geta treyst Miðflokknum

Sveinn Óskar Sigurðsson, núverandi oddviti Miðflokksins og bæjar­fulltrúi, leiðir lista Miðflokksins fyrir næst­komandi sveita­stjórnar­kosningar. Hann hefur lagt mikla áherslu á að fjármál bæjarins verði endur­skoðuð en skuldir bæjarins aukast nú ár frá ári sem hlutfall af tekjum bæjarins. Án hagkvæms rekstrar bæjarins er ekki hægt að koma til móts við bæjarbúa og tryggja betri þjónustu. ,,Ég vil benda á að bæjarbúar hafa horft upp á að viðhaldi skóla­bygginga hefur verið ábótavant og ábendingar mínar um slíkt komu fram strax í upphafi kjör­tímabilsins. Hefði ekki verið ýtt hressilega við meirihlutanum hefði lítið sem ekkert gerst og verkinu er ekki lokið.“.

Fyrir síðustu kosningar var lögð áhersla á gjald­frjálsar skóla­máltíðir, a.m.k. fyrir yngri deildir, og hefur ekki tekist að ná slíku máli í gegn vegna andstöðu meirihlutans í Mosfellsbæ sem segist veita börnum og aðstand­endum þeirra ölmusu með niður­fellingu krafna vegna innheimtu fyrir skóla­máltíðir ár hvert. Þessu verður að taka á og breyta. Miðflokkurinn kallaði eftir fullkomnu fjölnota íþrótta­húsi á kjör­tímabilinu en meirihlutinn byggði dúkahús sem þegar er farið að sjá á og kominn leki að. Við kölluðum eftir gjald­frjálsum Strætó fyrir börn og eldri borgara en það vita allir að það mun geta leitt til betri nýtingu á tómum vögnum byggðar­samlagsins sem aka um borg og bý. Við lögðum einnig áherslu á fjölþættum úrræðum fyrir börn og gæða­eftirliti í skóla­starfi, þ.e. sérstak­lega sem snýr að hljóðvist ofl. Oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ situr nú í fulltrúa­ráði Eirar og hefur komið fram þar með athuga­semdir sem hafa m.a. komið fram á aðalfundi þess ráðs varðandi uppgjör við aðstand­endur og eldri borgara. Því verkefni er að ljúka. Miðflokkurinn kallaði eftir algjörri uppstokkun hvað fjármál bæjarins varðar en því miður virðist stefna í enn meira óefni í því efnum hjá meirihlutanum. Miðflokkurinn kallar enn eftir því að bæta öryggismál í Mosfellsbæ en svo virðist sem ferðum löggæslunnar í bænum hafi fækkað mikið. Við lögðum þá áherslu á að setja íslensku í öndvegi í skólum og fá leikara og fagfólk á þessu sviði í enn frekara átak á þessu sviði. Við viljum sjá tónlistar- og menningarhús á bygginga­áætlun og höfum tekið þátt í að gera upp Hlégarð. Komið hefur fram að reisa á menningarhús og e.k. kirkju með ,,færanlegu altari“, sem virðist vera allt annað en áformað var, þ.e. kirkja. Að auki lögðum við áherslu á skipulags­málin sem eru enn í ólestri í bænum.

Allt þetta sem að framan er getið er enn á stefnu­skrá okkar í Miðflokknum. Við höfum lagt áherslu á þessa þætti allt síðasta kjör­tímabil. En á meðan Miðflokkurinn nær ekki að komast í meirihluta mun málum vera háttað eins og núverandi meirihluti í bænum leggur upp með, þ.e. fyrir utan það í málefna­samningi hans sem þeir standa ekki sjálfir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá