Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Við misstum tvo kvöldið sem föðurbróðir okkar myrti föður okkar

Ragn­ar var fædd­ur og upp­al­inn að Gýgjar­hóli í Bisk­upstung­um, á staðn­um þar sem hann lést eft­ir árás bróð­ur síns. Börn Ragn­ars lýsa því hvernig þeim varð smám sam­an ljóst að föð­ur­bróð­ir þeirra hefði ráð­ist að föð­ur þeirra með svo hrotta­leg­um hætti, hvernig hvert áfall­ið tók við af öðru eft­ir því sem rann­sókn máls­ins mið­aði fram.

„Þetta voru svo mik­il svik.“ Þau segja frá því hvernig griðastað­ur þeirra varð skyndi­lega vett­vang­ur mar­trað­ar, áhrif­um þess á fjöl­skyld­una og bar­átt­unni fyr­ir rétt­læti.

Þann 31. mars árið 2018 fannst Ragnar látinn á bænum Gýgjar­hóli II í Árnes­sýslu. Þrír bræður voru á staðnum er atvik átti sér stað. Valur, bróðir Ragnars og ábúandi á bænum tilkynnti um andlátið. Frásögn hans af hvernig á andlátið bar til þótti ótrú­verðug og í fram­haldinu var hann grunaður um manndráp. Þriðja bróðurnum var sleppt að lokinni skýrslu­töku, hann var sofandi þegar umrædd átók áttu sér stað. Ummerki voru um átök á vettvangi og bráðabirgða­krufning leiddi í ljós að áverkar á líkinu hafi orðið Ragnari að bana.

Sonur Ragnars heitins fullyrðir í löngu bréfi að banamaður pabba síns sé siðblindur ofbeldis­maður og dýra­níðingur.

Hefði pabbi ekki fengið sér í glas með manni sem hann hefði ekki getað gert sér í hugarlund að myndi slátra sér í sturlunar­kasti á leið út af heimilinu þessa nótt, þá væri hann lifandi enn í dag.“ Þetta segir Ingi Rafn Ragnarsson, sonur Ragnars, sem lést af völdum áverka sem bróðir hans, Valur, veitti honum á Gýgjar­hóli í Biskups­tungum 31. mars í fyrra. Valur var dæmdur í sjö ára fangelsi í Héraðs­dómi Suður­lands en málið er nú til meðferðar hjá Lands­rétti.

Í greininni, sem Stundin birtir, rekur Ingi Rafn í löngu máli kynni sín af Vali og segir meðal annars að hann sé siðblindur maður sem hafi ánægju af því að aflífa dýr. Hann ber að Valur sé þekktur af ofbeldis­verkum og að skapofsa­köst hans séu öllum sem til þekkja kunn. Faðir hans, Ragnar, hafi verið sá eini sem hafi sýnt Vali umburðar­lyndi.

„Þakklætið er svo sýnt með því að móðga föður minn, drepa hann og síðan leggja sig allan fram um persónuníð,“ skrifar Ingi Rafn.

Ingi Rafn rekur með nokkuð ítarlegum hætti niður­stöðu réttar­meina­fræðingsins Sebastian Kunz, en samkvæmt bréfi Inga Rafns voru árásirnar tvær, umrædda nótt og hrotta­fengnar.

Lýsingarnar eru ekki fyrir viðkvæma.

Valur í dóm­sal ásamt verj­anda sínum.

Ingi Rafn er ósáttur við niður­stöðu Héraðs­dóms Suður­lands. „Þrátt fyrir útlistun réttar­meina­fræðings á áverkum pabba kemst Héraðs­dómur Suður­lands að þeirri niður­stöðu að ekki sé hægt að líta framhjá því að áfengis­magn föður míns hafi átt þátt í dauða hans og þar með gefur dómurinn sér forsendur sem réttar­meina­fræðingur neitar að staðfesta. Það er mjög sérstakt að sitja undir því að Héraðs­dómur Suður­lands komist að þeirri niður­stöðu að þrátt fyrir ítrekað traðk á föður mínum, miklar blæðingar, innvortis og útvortis, mikinn blóðmissi, hálsbrot, brotin rifbein sem stingast í gegnum lifur og valda ofsalegum blæðingum og gati á lunga, þá væri pabbi í raun lífs í dag. Það var niður­staða Héraðs­dóms. Hefði pabbi ekki fengið sér í glas með manni sem hann hefði ekki getað gert sér í hugarlund að myndi slátra sér í sturlunar­kasti á leið út af heimilinu þessa nótt, þá væri hann lifandi enn í dag. Ólíkt öllum öðrum sambærilegum tilvikum þeirra sem hljóta slíka áverka er niður­staða Héraðs­dóms Suður­lands þvert á vitnis­burð réttar­meina­fræðings.“

Ingi Rafn segir raunar að Valur hafi áður verið hárs­breidd frá því verða bróður sínum að bana; í eitt skipti af gáleysi en í tvígang af ásetningi. „Héraðs­dómur gengur svo langt að meta það Val til refsilækkunar að hann hafi ekki stungið eða skotið, einungis traðkað hann til bana. Pabbi fékk versta dauðdaga sem hugsast getur og það er metið morðingjanum til refsilækkunar.“

Vali tókst, að sögn Inga Rafn að „fela sitt rétta eðli“ í gegn um alla máls­meðferðina fyrir Héraðs­dómi. Hann hafi lagt sig allan fram við að bróður sínum með ærumeiðingum. Honum gremst að fólk hafi trúað síbreytilegum frásögnum Vals af atburðum næturinnar. „Eins ótrúlegt og það kann að hljóma þá er siðblindur einstaklingur undan­tekningin á því að sjaldan veldur einn þá tveir deila. Þegar annar einstaklingurinn er siðlaus þá þurfa tveggja hliða deilur ekki að koma til. Heiðarlegri og réttsýnni menn en pabbi eru vandfundnir, þó hann hafi haft nóg af göllum eins og hver annar. Sann­leikanum hafa ekki verið gerð næg skil opinber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síðustu orðin um föður minn vera nafn­lausan rógburð frá Val  og fylgjum hans og því settist ég við skriftir.“

Það var þann 24. september í fyrra sem Valur var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að bana bróður sínum. Kol­brún Bene­dikts­dótt­ir sak­sókn­ari fór fram á að Val­ur yrði dæmd­ur í 16 ára fang­elsi, en dóm­ari varð ekki við þeirri kröfu. Val­ur var sak­felld­ur fyr­ir mann­dráp af gá­leysi og varðar brot hans við 2. mgr. 218. gr. al­mennra hegn­ing­ar­laga.

Bréfið má lesa í heild hér.

Heimildir:

Baldur Guðmundsson. 10. apríl 2019. „Pabbi fékk versta dauðdaga sem hugsast getur.“ Frétta­blaðið.

Erla Dóra Magnúsdóttir. 10. apríl 2019. Sann­leikurinn um morðið að Gýgjar­hóli: „Þakklætið er svo sýnt með því að móðga föður minn og drepa hann.“ DV.

Magnús Hlynur Hreiðarsson. 26. september 2018. Bróðir Ragnars og Vals segir dóminn fárán­legan. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá