Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Húsleit gerð á heimili Karls Wernerssonar: „Ég hef setið í fangelsi og verið á áfangaheimili“

Karl Emil Wernersson
Karl Emil Wernersson

Húsleit var gerð á heimili og vinnustað Karls Wernerssonar sem og heimili fjölskyldu­meðlima hans og heimili fleiri einstaklinga tengdum Karli. Kemur þetta fram í tilkynningu sem Karl sendi á fjölmiðla.

Í yfir­lýsingunni segist Karl vera búinn að fá nóg af lang­varandi „ofsóknum yfirvalda.“ Segist hann hafa hingað til haldið sér til hlés í fjöl­miðlum varðandi þessar ofsóknir. „Ég hef hingað til ákveðið að halda mig til hlés í fjöl­miðlum hvað varðar ofsóknir yfirvalda á hendur mér vegna meintra bókhalds­brota árin fyrir hrun. Mál vegna þessa hafa nú tekið 14 ár á þessu ári með viðeigandi óvissu fyrir alla aðila. Á þeim tíma hafa fallið dómar og áfrýjanir hafa orðið að frekari dómum. Ég hef setið í fangelsi, verið á áfanga­heimili og verið í stofu­fangelsi.“

Karl vísar í mál sem hann sigraði nýverið fyrir Mann­réttinda­dómstól Evrópu en þar var brot íslenska ríkisins viðurkennt í máli þar sem Karl var dæmdur til vistunar í fangelsi. Var það eitt af eftir­hruns málunum en Karl var umsvifa­mikill í viðskipta­lífinu á árunum fyrir hrun.

„Í kjölfar þessarar niður­stöðu hjá Mann­réttinda­dómstól Evrópu og Endur­upptöku­dómi og í kjölfar þess að sakamálið er aftur komið til meðferðar hjá Hæstarétti, virðist yfir­völdum þykja viðeigandi að hefja ofsóknirnar upp á nýtt með húsleit á heimili mínu, vinnustað mínum og heimili fjölskyldu­meðlima ásamt fleiri aðilum,“ segir Karl í yfir­lýsingunni.

Í málinu náðist sátt og viðurkenndi íslenska ríkið óréttláta máls­meðferð í dómum sem Karl og fjórir aðrir einstaklingar fengu í kjölfar hrunsins 2008. Mann­réttinda­dómstóll Evrópu felldi málið niður þar sem íslenska ríkið hefur samþykkt að greiða bætur til fjór­menninganna. Fá þau Sigurjón Þorvaldur Árnason, Ívar Guðjónsson, Sigurþór Charles Guðmundsson, Margrét Guðjóns­dóttir ásamt Karli, greiddar 1,8 milljónir í bætur.

Ástæðuna fyrir húsleitunum telur Karl vera þá að verið sé að aðstoða þrotabú sitt vegna mála sem það reki í dóms­kerfinu um þessar mundir. Þá efast hann að um tilviljun sé að ræða að sakamála­rannsókn sé hafin sem byggð er á eldri kæru aðeins nokkrum dögum fyrir dóms­úrskurð í einkamáli þessu tengdu.

„Ekki er talið nóg að þrotabúið reyni að sækja fjármuni heldur ákveður yfir­valdið að rétt sé, þegar von er á dómi á næstu dögum, að hefja sakamála­rannsókn. Er þörf á húsleit vegna viðskipta sem eru 8 ára gömul? Eða er kannski verið að reyna að hafa áhrif á dómara sem eru þessa dagana að kveða upp dóm? Eru mann­réttindi bara sumra en ekki annarra? Hvenær sættir yfir­valdið sig við að tilefnið var ekkert og nú sé nóg komið af stöðugum inngripum inn í líf fólks? Eru 14 ár í ofsóknum ekki nóg?“

Ekki náðist í Karl við vinnslu fréttarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá