Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Simbi varð tannlaus vegna neyslu – sneri við blaðinu og fékk nýtt bros: „Beinin höfðu eyðst mikið“

Hér er brot úr viðtali við Sigmund Geir Helgason sem birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs en Sigmundur, eða Simbi eins og hann er kallaður, missti allar tennurnar vegna fíkniefna­neyslu og ákvað að snúa við blaðinu.

Athugið að myndir sem fylgja greininni eru ekki fyrir viðkvæma.

Simbi ákvað að freista gæfunnar í þárið 2019, þegar hann var búinn að vera edrú í um það bil tvö ár. Hann hélt af stað til Búdapest og fór á tann­lækna­stofuna. Þar spurði hann til að byrja með hvort eitthvað væri hægt að gera við gervi­gómana hans, til þess að gera þá betri.

„Þá fer tann­læknirinn bara að smíða góma. Hún smíðaði góm, og annan, og annan góm, þangað til ég var sáttur. Það sást mikið í tennurnar og brosið, og þeir héldust mikið betur. Það var einfald­lega einhvern veginn allt annað í boði. Síðan fljótlega eftir að ég fékk gómana, í apríl 2019, fórum við að skoða hvort það væri hægt að gera eitthvað meira fyrir mig.“

Í ljós kom, eftir tölu­verðar skoðanir, að hugsanlega væri hægt að hjálpa Simba enn frekar.

„Fyrst kom smá panikk, því það voru eiginlega engin bein til staðar. Beinin höfðu eyðst svo mikið. Þau vissu fyrst ekki hvort það væri hægt að gera eitthvað fyrir mig. Það var búið að tala um það eitthvað hér heima, þetta með beinin, og ég var eiginlega byrjaður að fá svona svipuð svör hérna. Þau sögðust samt ekki ætla að segja alveg nei. Svo héldu þau áfram að leita að lausn. Sendu þetta eitthvert áfram og síðan fundu þau lausnina. Það var bein­ígræðsla sem ég þurfti að fara í. Þar var tekið bein úr mjöðminni á mér og grætt upp í mig. Ég byrjaði í þessu ferli í september árið 2019.

Skurð­ur­inn á mjöðm Simba.

Sú aðgerð gekk vel. Það var svæfing og svoleiðis – þetta er kannski svolítið extreme – þetta er alls ekki svona hjá öllum. Síðan þurfti ég bara að jafna mig eftir aðgerðina.“

Simbi á spít­al­anum, þar sem hann gekkst undir beinígræðsl­una.

Simbi gekkst í raun undir þrjár aðgerðir í heildina. Sú fyrsta var þegar hann fékk implönt í neðri góm, í lok september fór hann síðan í bein­ígræðslu sem var gerð í efri gómi.

Hér er Simbi ansi bólg­inn eftir beinígræðsl­una.
Eftir beinígræðsl­una á spít­al­anum.

Lítið bein var til staðar í neðri gómi, en þrátt fyrir það náðist að koma implöntum fyrir þar. Það kallast „all-on-four“ og var hugsað sem tíma­bundin lausn.

Úr ferl­inu

Meðan á þessu öllu stóð var Simbi tannlaus í sex mánuði í efri gómi. Í lok febrúar árið 2020 voru loks sett implönt í efri góm.

Þarna er Simbi alveg tann­laus.

„Svo taka aðrir þrír mánuðir við þar sem þetta er látið jafna sig. Svo fæ ég skrúfað upp.“

Hér er verið að setja implöntin í efri góm, með sér­stökum stýrigóm. Þörf var á slíkum gómi í til­felli Simba vegna þess hve lítið bein var til staðar.

Eftir að Simbi fékk implöntin, á meðan þau voru enn að gróa, gat hann ekki verið verið með góm öðruvísi en fræst væri framan af gómnum. Gómurinn var einungis útlits­legur og ekki með sitt venjulega notagildi. Til þess að geta verið með hann þurfti að setja mikið af gómalími og ýmislegt óhentugt sem fylgdi.

„Þetta var smá bras, en þetta er allt þess virði á endanum. Jólin síðustu voru fyrstu jólin í langan tíma sem ég borðað allt. Við grilluðum nautakjöt þrisvar, fjórum sinnum sko – þetta voru geggjuð jól.“

Hér má lesa sögu Simba í heild sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá