Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Hugleikur á barmi gjaldþrots: „Það sem er fast í hendi núna er rekstur í hálft ár“

Þórarinn Stefánsson (Tóró)
Þórarinn Stef­áns­son (Tóró) Mynd: hugsmidjan.is

Áhuga­leikhúsið Hugleikur stendur frammi fyrir miklum erfið­leikum eftir að Reykja­víkurborg synjaði þeim um styrk í ár en það er í fyrsta sinn síðan Hugleikur byrjaði að sækja um styrki til borgarinnar, sem synjun berst. Eins og staðan er núna getur leik­félagið rótgróna starfað í hálft ár í viðbót.

Hugleikur er eitt þekktasta áhuga­leikhús landsins en það var stofnað í Reykjavík árið 1984. Leik­félagið hefur þá sérstöðu meðal íslenskra leik­félaga að leik­verkin sem það hefur haft til sýninga eru nær öll samin af meðlimum hópsins. Auk leik­sýninga hefur Hugleikur einnig staðið fyrir fjöldi námskeiða á sviði leik­listar frá stofnun. Fjöldi meðlima er nokkuð á reiki enda félagatal í leik­félögum oft nokkuð fljótandi, fólk kemur og fer en í Facebook hóp Hugleiks eru um 200 manns. Má segja að Hugleikur hafi í gegnum tíðina verið einhverskonar útungunarstöð fyrir leikara og starfs­menn atvinnu­leikhúsanna en nefna má til dæmis Þuríði Blæ Jóhanns­dóttur, sem steig sín fyrstu skref hjá leik­félaginu en er nú ein dáðasta leikkona landsins af yngri kynslóðinni. Þá hafa nokkrir meðlimir Ljótu hálf­vitanna verið viðriðnir Hugleik sem og Flosi Þorgeirsson, gítar­leikari Ham, svo einhverjir séu nefndir.

Úr Gesta­gangi eftir Þórunni Guð­munds­dóttur

Mannlíf talaði við formann Hugleiks, Þórarinn Stef­ánsson eða Tóró eins og hann er kallaður. „Já, við erum í smá brasi. Eins og þú veist er félagið rótgróið en það verður 40 ára eftir tvö ár. Fyrstu árin var félagið svona að redda sér og borgin var liðleg að hjálpa okkur að komast inn í húsnæði hér og þar. Um það leyti sem ég kem inn í félagið, árið 2003, kaupir félagið húsnæði út á Eyjaslóð sem varð svona fasta­punktur í starfseminni. Á þeim tíma, árið 2004 vorum við með samstarfs­samning við borgina, við gátum sem sagt treyst því að fá styrk frá borginni í nokkur ár og í staðinn skuld­bundum við okkur að vera með leik­sýningar og stuttverkadagskrá. Síðan í kringum Hrunið breytist þetta þannig að borgin er með menningar­styrki sem allir sækja um og það fer í eitthvað ferli. Þar höfum við yfirleitt fengið styrki, þegar við sækjum um en upphæðin hefur smá saman lækkað, ef við lítum á þetta útfrá vísitölu­tengingu. En aftur á móti er félagið orðið fjárhagslegra stöndugra á þessu augna­bliki, sérstak­lega eftir að við fluttum á Langholts­veginn. Reksturinn á því húsnæði er talsvert ódýrari en það var á Eyjaslóð en kosnaðurinn í rekstrinum. Það er svolítið írónískt að lang­stærsti parturinn í því eru gjöld til borgarinnar. Lauslega er það svona milljón á ári sem húsnæðið kostar og um helmingurinn af því er fasteigna­gjöld til borgarinnar. Upp á síðkastið hafa styrkirnir ekki náð að dekka það.“

Í ár fékk svo Hugleikur neitun um styrk frá borginni eins og segir frá hér að ofan.

„Við höfum sem sagt getað reitt okkur á styrki frá borginni en það virðist ekki vera lengur og það eru ákveðin vonbrigði. Maður fær það svolítið á tilfinninguna að áhuga­stimpillinn sé að flækjast fyrir okkur núna því að eitt af því sem var nefnt í rökstuðningi fyrir úthlutun í ár var það að nú ætti að leggja áherslu á að styrkja verkefni sem greiddu laun til lista­manna. Það virðist sem faghópurinn sem úthlutar styrkjunum sé að horfa meira til atvinnu­leikhúsanna,“ sagði Tóró en í framhaldi af synjuninni, sendi stjórn Hugleiks bréf á borgina. „Við sendum aðra umsókn eftir synjunina og vorum þar að vísa í gamla sáttar­samninginn á milli Hugleiks og borgarinnar og óskuðum eftir því að fá eitthvað sambærilegt. En svarið var í stuttu máli það að ferlið fer bara í gegnum fagráðið og því verður ekki breytt. Við vorum hvött til að sækja um á næsta ári en það er auðvitað ekkert fast í hendi með það.“

Úr sýn­ing­unni Gesta­gangur eftir Þórunni Guð­munds­dóttur

Þannig að staðan er slæm núna? „Já, sko við vorum að klára að sýna Gestagang þegar Covid skellur á, sem er flottasta sýning sem við höfum haft lengi og sú sýning hefur verið að halda okkur á floti á Covid-tímanum. En það fer að klárast bráðum en við erum að vonast til að fá einhverja verkefna­styrki í sumar fyrir það sem við gerðum í vetur, frá Bandalagi íslenskra leik­félaga. En það er bara fyrir stuttverk, höfum ekki þorað að taka áhættuna með stærri verk.“

En myndu BÍL styrkirnir dekka árið? „Við bara vitum það ekki, þetta er svona pottur og það fer eftir því hvað mörg leikfélög sækja um, hvað hvert þeirra fær í sinn hlut. Við höfum verið eins og flest önnur áhuga­félög, verið lengi að koma okkur aftur í gang eftir Covid og dagskráin ekki verið jafn mikil og við hefðum viljað en vonumst til að sýna meira í maí,“ sagði Tóró og bætti við að lokum: „Við getum sagt að það sem er fast í hendi núna er rekstur í hálft ár.“

Þau sem vilja styrkja þetta frábæra leikhús er bent á banka­reikning Hugleiks: Reiknings­númer Hugleiks er 327-26-9292 og kennitala: 691184-0729

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá