Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gói syngur á ný: „Pínu vanhugsað að ferma daginn eftir afmælið mitt“

Guðjón Davíð Karlsson á afmæli í dag. „Hver er það?“ gæti einhver spurt. Jú, þetta er enginn annar en hinn stór­skemmtilegi stór­leikari Gói sem er 42 ára í dag. Sem þýðir að hann hafi fæðst á hinu frábæra ári 1980.

Gói er með vinsælli leikurum þjóðarinnar en hann er jafnvígur í gaman og dramaleik. Meðal þekktustu verka sem Gói hefur tekið þátt í eru Sveppa­myndirnar, Lof mér að falla, Ófærð og Verbúð. Þá hefur hann einnig slegið í gegn í ýmsum leikritum á fjölum leik­húsanna. Og ekki má gleyma því þegar Gói lyfti Stundinni okkar á annað plan en hann stjórnaði þeim vinsæla krakka­þætti um nokkurra ára skeið ásamt Kristínu Þóru Haralds­dóttur.

Mannlíf heyrði í Góa hljóðið og forvitnaðist um afmælis­daginn hans.

„Heyrðu, ég ætla bara að hafa það rólegt með fjöl­skyldunni en stóra verkefni dagsins er fermingar­undir­búningur. Frum­burðurinn fermist á morgun. Þannig að dagurinn fer svolítið bara í það að hnýta síðustu lausu endana og græja salinn og svona, þannig að afmælið er svolítið að falla í skuggann. Kannski pínu vanhugsað að ferma daginn eftir afmælið mitt,“ sagði Gói eldhress.

Aðspurður hvort hann fengi ekki einu sinni afmælis­köku í tilefni dagsins sagðist Gói efast um það. „Nei ætli ég fái ekki bara einhverja afganga á morgun. En þessi mistök verða ekki gerð aftur!“ sagði Gói og hló.

En hvað er framundan hjá Góa?

„Ég er að leikstýra Ávaxta­körfunni sem verður frumsýnd í Hörpu á laugar­daginn eftir viku. Svo er ég að fara að taka þátt í Jesus Christ Superstar sem verður sýnd í Eldborg á Skírdag. Og svo er ég, Halli vinur minn og Jón Ólafsson með tónleika í Salnum 22. apríl. Ég og Hall­grímur Ólafsson höfum verið að koma fram með svona leikhús­prógram, söngleikjalög og lög úr öllum áttum innan leikhús­rammans. Og nú ætlum við að vera með Jóni Ólafs. Verðum á Akranesi í næstu viku og svo í Salnum í Kópavogi og erum alveg rosalega spenntir fyrir því. Svo er ég bara að æfa í Þjóð­leikhúsinu. Er að æfa söngleik sem heitir Sem á himni, sem verður frum­sýndur næsta haust. Það er langt síðan ég hef verið í söngleik og nú fær ég bara nokkar söng­rullur í röð sem er bara ótrúlega skemmtilegt.“

Þegar blaða­maður Mannlífs ráðleggur honum í lok símtalsins að koma við í bakaríi til að kaupa sér að minnsta kosti sneið af afmælis­köku tekur Gói vel í það. „Já ég verð eiginlega að gera eitthvað. Ég er að vona að kona mín komi heim með eitthvað sko. Þú getur kannski droppað hintum til hennar með þessari afmælis­frétt?“ sagði Gói hress að vanda. Og hér er vísbending til konu Góa: Skrepptu í bakarí og keyptu eitthvað gotterí handa karlinum.

Mannlíf óskar Góa innilega til lukku með afmælið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá