Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tónlistin fann Aldísi Fjólu aftur og aftur: „Rosalegt að koma tilfinningum út á þennan hátt“

Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir.
Aldís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dóttir. Mynd: Aðsend.

Tónlistar­konan Aldís Fjóla heldur útgáfu­tónleika í Iðnó á morgun, laugar­daginn 23. apríl. Það óvenju­lega við þessa útgáfu­tónleika, eins og gildir um marga viðburði um þessar mundir, er að fyrsta plata Aldísar, sem tónleikarnir hverfast um, er tveggja ára gömul.

„Ég er í rauninni bara búin að halda á plötunni minni síðan hún kom út 2020 og bíða eftir að fá að halda tónleika í Reykjavík til að fagna henni með öllum sem vilja,“ segir Aldís Fjóla um tíma­setningu tónleik­anna. Það hefur enda verið flókið fyrir tónlistar­fólk að gefa út nýjar plötur síðustu tvö ár í heims­faraldri, þegar tónleika­hald hefur lítið sem ekkert verið í boði.

Aldís Fjóla á mynd­inni framan á plöt­unni hennar, Shadows.

Aldís Fjóla kemur frá Borgar­firði eystra og vissi snemma að hún vildi standa uppi á sviði. „Öll hádegi voru dans­hádegi í stofunni heima, þar sem ég var bara ein að dansa við Ruth Reginalds, Stjórnina og Mini Pops. Ég og frænka mín tókum síðan upp endalaus myndbönd af okkur að mæma lög af gríðarlegri tilfinningu. Ellefu ára samdi ég fyrsta lagið mitt um köttinn minn sem dó. Það var rosalegt að koma tilfinningum út á þennan hátt.“ Aldís var þó lengi að láta drauminn sinn um að syngja rætast. Með aldrinum kom óöryggið og efinn. „Þegar ég sá og heyrði að umhverfið og samfélagið í kringum mig sagði mér stans­laust að ég gæti ekki unnið eða lifað á því sem ég brenn fyrir, þá tók rökhugsunin yfir og ég fór einhvern veginn í allar áttir til að reyna að finna eitthvað annað. Það er ekki svo auðvelt þegar tónlistin lætur þig varla í friði. Árið 2006 fór ég fyrir algjöra heppni í Complete Vocal Institute í Kaupmanna­höfn og þar fann ég mína rödd, fékk þau hrós og hvatningu sem ég þurfti og samdi og kláraði mitt annað lag. Þarna kviknaði eitthvað sem ég var búin að bæla niður svo lengi,“ segir Aldís.

Aldís Fjóla opnaði aftur á tónlist tveimur árum eftir andlát móður sinnar, sem lést eftir erfiða baráttu við krabba­mein, með því að stofna hljóm­sveitina Borgfjörð með nokkrum vinum sínum. Sú hljómsveit gaf út tvö lög og Aldís fann neistann á ný. Skömmu síðar flutti hún aftur suður til Reykja­víkur til að vera nær hljóm­sveitinni – en ekkert gerðist. „Ég var einhvern veginn alltaf að bíða eftir því að það myndi eitthvað gerast. Að strákarnir í bandinu hefðu tíma, að einhver myndi „finna“ okkur eða við myndum henda í meiri tónlist. Eftir mikla sjálfs­vinnu og pælingar lærði ég að það gerir enginn þetta fyrir þig. Það hefur enginn jafn­mikinn metnað og þú fyrir þinni tónlist og ég þurfti að gera þetta sjálf til að það myndi eitthvað gerast hjá mér.“

Frá tón­leikum hljóm­sveit­ar­innar.

Plötuna, sem nefnist Shadows, gerði Aldís í samvinnu við Stefán Örn Gunnlaugsson, upptöku­stjóra. „Árið 2018 þorði ég að senda honum skilaboð með tveimur demóum frá mér og spurði hvort hann vildi hjálpa mér. Tíu mínútum seinna sagði hann já og hann hefur ekki losnað við mig síðan.“ Aldís og Stefán Örn semja lögin saman en Aldís Fjóla semur textana. „Ég hef alltaf hlustað rosalega mikið á texta og túlkað þá í gegnum mig og mína líðan hverju sinni. Mínir textar eru innblásnir af minni reynslu, umhverfinu og vinum, ásamt því að ég gríp oft línur úr kvik­myndum og þáttum sem stingast inn í mig þegar ég horfi.“

Útgáfu­tónleikar Aldísar Fjólu fara fram í Iðnó á morgun, laugar­daginn 23. apríl klukkan 20:00. Um upphitun sér tónlistar­konan Zöé. Aldís biður tónleika­gesti um að koma með dansskóna með sér. „Það verður farið alla leið og skálað og dansað eftir tónleika, þar sem ég verð nýorðin fertug þarna,“ segir hún, afar spennt fyrir laugar­deginum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt