Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

SÖFNUN – Pétur fékk tvö alvarleg heilablóðföll: „Þessi harmleikur var mikið reiðarslag“

Pétur vill ná sér að fullu
Pétur vill ná sér að fullu Mynd: Facebook – skjáskot

Fjöl­skylda Péturs safnar nú fyrir kraftaverka­sprautu í Banda­ríkjunum eftir að Pétur fékk tvö alvarleg heila­blóðföll. Missti hann forræðið yfir börnum sínum tveimur vegna veikindanna en stefnir á að ná sér að fullu aftur, svo hann geti verið til staðar fyrir börnin.

Pétur Daníelsson hefur ekki átt auðvelda ævi. Hann fæddist með mjög alvarlegan hjarta­galla fyrir 27 árum og neyddist hann til að fara í sinn fyrsta uppskurð aðeins 12 klukku­stundum eftir að hann kom í heiminn. Nýlega fékk Pétur tvö alvarleg heila­blóðföll og var hætt kominn á tímabili. Lamaðist hann á hægri síðu og var í hjólastól fyrstu vikurnar og átti mjög erfitt með að tala og tjá sig. Þurfti hann að læra allt uppá nýtt.

Litla systir Péturs, Lena Davíðs­dóttir skrifaði á dögunum færslu á Facebook þar sem hún segir frá raunum bróður síns og biður fólk um að styrkja hann. Lena gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni.

„Kæru vinir, vandamenn, fjöl­skylda og allir sem þetta kunna að lesa:

Okkur langar að biðja ykkur um hjálp fyrir hann elsku Pétur okkar. Frá unga aldri hefur lífsleið Péturs ávallt verið þakin þyrnum, en hann fæddist með mjög alvarlegan hjarta­galla og aðeins tólf tímum eftir að hann kom í heiminn þurfti hann að leggjast undir skurð­hnífinn og fara í sína fyrstu aðgerð; þá næstu þegar hann var aðeins tveggja daga gamall. Þrátt fyrir allan þennan viðbúnað þá dugðu úrræðin ekki til og þegar Pétur var eins árs gamall þá fluttum við fjöl­skyldum til Lund í Svíþjóð þar sem hann fór í þrjár stórar hjarta-aðgerðir sem þýddi það að sín fyrstu ár þá bjó Pétur meira og minna upp á spítala og var það með öllu óvíst hvort hann myndi hreinlega lifa þessi ósköp af.Vegna veikinda sinna upplifði Pétur ekki sömu æsku og flest börn á hans aldri. Hann hefur þurft að taka lífs­nauðsynleg lyf daglega, alla ævi og hafa veikindin einnig haft áhrif á námsgetu og skóla­göngu hans. Ásamt því er Pétur með stór ör eftir aðgerðirnar sínar, bæði frá bringu niður á nafla og annað sem nær yfir á mitt bakið.Í september árið 2020 lenti Pétur í enn annarri martröðinni og þurfti að berjast fyrir lífinu sínu aftur. Aðeins 27 ára gamall fékk hann mjög alvarlegt heila­blóðfall og fannst hann á gólfinu heima í stofu eftir að hafa fengið blóðtapppa í höfuðið. Pétur var lagður inn á gjörgæslu­deild þar sem hann fær hjálp en mánuði síðar fær hann annað mjög stórt heila­blóðfall meðan hann liggur enn á spítala.Hann er strax lagður inná gjörgæslu aftur og við fjöl­skyldan erum logandi hrædd um að hann sé að fara frá okkur en þökk risa krafta­verki þá lifði hann sem betur fer af.Pétur lamaðist á hægri síðu og var í hjólastól fyrstu vikurnar og átti mjög erfitt með að tala og tjá sig. Þarna þurfti hann að læra allt uppá nýtt. Eitt hænuskref í einu. Þessi harm­leikur var mikið reiðar­slag fyrir bæði Pétur og okkur öll, og er hann nú búinn að vera í langri endur­hæfingu sem hefur sem betur fer gengið ágætlega en hann var mjög lengi að ná að getað gengið aftur og hann haltrar enn og er með hamlaða hreyfi­getu.Pétur er tveggja barna faðir og í kjölfar þessara hremminga þá missti hann forræði sitt yfir þeim sem er alveg ömurlegt fyrir hann og börnin hans. Hann Pétur okkar er hörkutól og hann þráir ekkert heitar en að getað lifað eins eðlilegu lífi og hægt er og koma sér aftur í gang og fyrra horf og vera til staðar fyrir börnin sín og sjálfan sig.Þegar við heyrðum af því að það væri til sprauta, sem hægt er að fá í Banda­ríkjunum, sem væri að gera krafta­verk fyrir fólk sem hefur lent í því að fá alvarleg heila­blóðföll og hjálpa þeim að ná góðum bata, að þá langar okkur að gera allt sem við getum til að gefa Pétri tækifæri á að komast út og fá þessa sprautu til að hann geti komist í fyrra horf.Ef ykkur langar til að rétta fram hönd til hjálpar Pétri þá er það hægt að gera með styrk í gegnum eftir­farandi reikning:

Kt: 150694-3029

Reiknings­númer: 0537-14-400623

Margt smátt gerir eitt stórt og viljum við þakka öllum kærlega fyrir sem bæði tóku sér tíma til að lesa þennan pistil og jafnframt þeim sem leggja hönd á plóg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá