Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sindri gægist inn í hugarheim geranda sem hótaði sjálfsmorði: „Ég hrindi henni á vegginn“

Skjáskot. Mynd/VÍSIR
Skjáskot. Mynd/VÍSIR

„Ég hef aldrei slegið hana en þetta er samt bara ekkert eðlilegt hjá mér,“ segir maðurinn í lokaþætti Heimilis­ofbeldis sem var sýndur á Stöð 2 í gær. Í þættinum er skyggnst inn í hugarheim geranda sem er enn þann dag í dag með eiginkonu sinni.

Sindri Sindrason ræddi við mann sem gengst við því að vera ofbeldis­maður. Maðurinn er á fimmtugsaldri, faðir þriggja barna á unglings­aldri og viðskipta­fræðingur að mennt.

Eigin­konunni kynntist hann þegar hún var á öðru ári í háskólanum en hún er einnig viðskipta­fræðingur. Maðurinn segist aðallega hafa beitt eiginkonu sína andlegu ofbeldi en einnig líkamlegu og þá einna helst hrint konunni eða gripið fast í hana.

„Ég er á leiðinni út úr húsinu og hún stendur fyrir mér og ég hrindi henni á vegginn, og hún fær eymsli í kjölfarið. Ekkert við hana að sakast, bara hundrað prósent mér að kenna,“ segir maðurinn í þættinum en þar kom einnig fram að hann hafi tekið dreng þeirra eitt sinn hálstaki þegar hann var á fermingar­aldri.

Hann fór í sálfræði­meðferð á stöð sem kallast Heimilis­friður og er til húsa á Höfða­bakka og er hann þar enn í meðferð.

„Ég var aldrei meðvitaður að beita andlegu ofbeldi í þeirri pælingu að láta einhverjum öðrum líða illa. Ég fékk ekkert kick út úr því að fólki liði illa í kringum mig. Taktíkin var svolítið að ýta henni frá mér og svo fékk ég vellíðunar­tilfinningu þegar hún kemur til baka. Hún segist þá elska mig og biðst afsökunar,“ segir maðurinn og heldur áfram.

„Það versta sem ég gerði í nokkur skipti á þessu tímabili, kannski þrisvar eða fjórum sinnum á þessu tímabili, á þessum tuttugu árum. Þá hóta ég sjálfs­morði. Líð það illa og vil fá þessa ástar­játningu út af þessari höfnun að ég hóta að drepa mig. Ég svara ekki símtölum frá henni. Ég var aldrei að fara drepa mig, ég vildi bara að hún myndi finna hvar ég væri og segjast elska mig og ganga á eftir mér. Þú getur ímyndað þér hvernig henni leið út af þessu.“

Maðurinn lagði áherslu á það í frásögn sinni að hann vildi enga athygli eða klapp á bakið fyrir að stíga fram. Hann hefði sjálfur áttað sig á því að hann væri fíflið og viljað vinna í sínum málum. Hann sæi fram­tíðina fyrir sér með konunni sinni og væri meðvitaður um að hún myndi ekki sætta sig við meira kjaftæði. Kona mannsins veitti leyfi fyrir því að hann segði sögu sína í þætti gærkvöldsins sem var sá síðasti í þátta­röðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá