Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Landlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“

Alma Möller Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Alma Möller Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Alma Dagbjört Möller land­læknir var viðstödd opnun nýrrar röntgen­deildar hjá Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja, HSS, ásamt Willum Þór Þórssyni, heilbrigðis­ráðherra, í síðustu viku. Víkur­fréttir voru á staðnum og tók Ölmu tali.

„Það er ánægjulegt að hér á HSS hefur verið tekið til hendinni og unnið að uppbyggingu á innviðum stofnunarinnar. Það er nauðsynlegt því mikil fólks­fjölgun hefur orðið á svæðinu undan­farin ár sem kallar jú á aukna starfsemi og stærra húsnæði. Nú er komið að þeim tímamótum að fyrsti áfangi húsnæðis­breytinganna er tilbúinn sem er ný röntgen­deild. Hún var flutt til að vera við hliðina á nýrri slysa- og bráða­móttöku en framkvæmdir við hana hefjast á næstu vikum,“ sagði Alma Dagbjört Möller land­læknir er ný röntgen­deild var formlega opnuð á HSS í síðustu viku. Hvatti land­læknir starfs­fólk Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja til að halda áfram á þeirri vegferð að efla þjónustu HSS, gæði hennar og öryggi.

„Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða. Mig langar að segja það að það er mikill vilji til umbóta hjá stofnuninni. Það sé ég sem land­læknir því við höfum gert hér úttektir bæði á starfsemi heilsu­gæslu og legu­deildar. Það er mín trú að hér verði aukin gæði og aukið öryggi sjúklinga. Svo má nefna það að það er afar mikilvægt að almenningur, þar með talið stjórn­endur í sveitar­félögum og þingmenn taki utanum stofnunina og vinni með henni í þessari gæða- og umbóta­vegferð,“ segir Alma og á þá við umræðuna sem skapast hefur um stofnunina um nokkurt skeið, meðal annars vegna andláts níu sjúklinga HSS sem dr. Skúli Tómas Gunnlaugsson annaðist og hefur nú réttar­stöðu grunaðra við rannsókn málsins. Alma gaf Skúla tvívegis starfs­leyfi til að vinna á Land­spítalanum, eftir að málið kom upp, þó með skilyrðum.

Sjá einnig: Skúli er undir eftirliti sérfræðinga spítalans í lyflækningum: „LSH fylgist með framvindu málsins“

„Það er verið að endurbæta húsnæðið mjög og þetta er fyrsti áfangi að opna nýja og glæsilega röntgen­deild. Síðan verður haldið áfram með bráða­móttöku og fleira. Þetta er afskaplega mikilvægt því húsnæði er mikil­vægur þáttur starfs­umhverfis og hér hefur vantað á mönnun, ekki síst lækna. Mínar vonir eru að þetta geri stofnunina eftir­sóttari vinnustað.“

Aðspurð um það hvaða leið­beiningar hún hafi verið með til stofnunarinnar í ljósi alls sem á undan hefur gengið, svaraði Alma á eftir­farandi hátt:

„Við höfum brýnt fyrir stofnuninni að ráðast í þær umbætur sem þarf, því við höfum greint bæði styrk­leika og veikleika. Það er mikil­vægast þegar erfið umræða kemur upp er að hlusta og líta inná við á hvað þurfi að laga og vinda sér í það. Ég sé að það er vilji til umbóta en umbætur eru ekki hristar fram úr erminni, þær taka tíma og í rauninni lýkur þeim aldrei. Mikil­vægast er að hlusta og bregðast við eins og þarf.“

Varðandi framtíð HSS hefur Alma fulla trú á að þjónustan verði bætt.

„Ég hef fulla trú á því að hér verði bætt þjónusta og það er mikilvægt. Við sjáum hvað íbúum hér hefur fjölgað og það er afar mikilvægt að bæta þjónustuna og stækka húsnæði eins og við erum að sjá hérna í dag.“

Land­læknis­embættið gerði úttekt á HSS nýlega en meðal þess sem þarf að laga samkvæmt embættinu er efling mönnunar.

„Það er bara eins og víðast hvar í heilbrigðis­kerfinu, það þarf að efla mönnun og það hjá flestum starfs­stéttum og ég nefni sérstak­lega lækna. Það þarf að efla teymis­vinnu og almennt gæða- og öryggis­starf. Fleira mætti telja en þetta eru aðal­atriðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ