Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Faxaskjólsbeinin – Börn fundu mannabein við leik í Reykjavík

Sumarið 1975 voru nokkur börn að leik við Faxaskjól í Reykjavík þegar þau rákust á mannabein. „Okkur brá svolítið, en svo héldum við bara áfram að leita,“ sögðu börnin í samtali við Morgun­blaðið á sínum tíma.

Beinin voru, ásamt sokkum, tölum og þremur byssu­kúlum í grunnri gröf. Strax var ljóst að ekki væri um forn­leifar að ræða, efnið í sokkunum benti til þess að einstaklingurinn hafi verið uppi eftir síðari heims­styrjöldina. Beina­grindin fannst í nærri heilu lagi og allar tennur var enn að finna í höfuð­kúpunni. Talið var að beinin tilheyrðu manni á aldrinum 40 til 50 ára, hann var um 170 til 175 sentí­metrar á hæð.

Á svæðinu, þar sem beinin fundust, voru töluverð mannvirki á stríðs­árunum. Beinin voru í stein­steyptum stokki sem notaður var til skot­æfinga. Grafið var yfir rústirnar árið 1955 og var því talið víst að líkið hafi verið grafið þarna eftir þann tíma.

Stuttu eftir beina­fundinn var farið að kanna þann möguleika að beinin tengdust hvarfi Sveinbjörns Jakobs­sonar frá Ólafsvík en hann hvarf árið 1930. Þótti líkams­bygging og aldur einstaklingsins sem beinin tilheyrðu, passa við lýsingar á Svein­birni. Fljótt var þó útilokað að um Svein­björn væri að ræða þar sem hann var með gervi­tennur en í haus­kúpunni fannst ekkert því um líkt.

Bárður Jónsson hvarf árið 1963, ættingjar hans vildu að athugað yrði hvort beinin gætu tilheyrt honum, þeim var þó sagt að líklega væri um breskan eða bandarískan hermann að ræða og var því aldrei fallist á þá ósk.

Grunað var um tíma að beinin tilheyrðu Hannesi Pálssyni sem hvarf árið 1945, hvarf hans var talið tengjast bandaríska hernum en lögreglunni fannst það ekki trúverðugt og var það því aldrei rannsakað.

Þrátt fyrir rann­sóknir var aldrei komist að því hver maðurinn var sem fannst í Faxa­skjóli, né hvers vegna hann endaði þar.

Heimildir: Morgun­blaðið, 1975. Saknað, Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H. Hall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá