Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hópur tölvuhakkara hótar Pútín: „Þinn tími er að renna út – Við fyrirgefum ekki – Við gleymum ekki“

Meðlimur í Squad 303/Anonymous tölvuhakkarahópnum
Meðlimur í Squad 303/Anonymous tölvu­hakk­ara­hópnum

Samtökin Anonymous, sem er hópur hakkara út um allan heim tilkynntu í síðustu viku að hafa brotist inn í seðla­banka Rússlands. Samtökin segjast hafa komist yfir 35.000 „trúnaðar­skjöl (e. secret documents)“ og hyggjast gera trúnaðar­skjölin opinber á næstu dögum.

Í lok febrúar á þessu ári sendu hakk­ararnir frá sér myndband þar sem þeir höfðu í hótunum við Vladimír Pútín Rúss­lands­forseta eftir innrás þeirra í Úkraínu.

„Bráðum muntu finna fyrir reiði hakkara heimsins, við erum allstaðar, inn í herberginu þínu og fylgjumst með öllu sem þú gerir,“ sagði Anonymous í myndbandi á Twitter.

Trufluðu dagskrá rússneskrar ríkissjónvarpsstöðvar

Hópurinn segist hafa staðið við allar hótanirnar. Í viðtali við BBC í síðustu viku sögðu hakk­ararnir sem tengjast Anonymous hafa brotist inn á rússneskar ríkis­sjónvarps­stöðvar og gert stutta truflun á dagskránni til að sýna myndband af úkraínskum byggingum sem höfðu verið sprengdar af rússneska hernum.

Rússnesk stjórn­völd fylgjast vel með fjöl­miðlum í landinu. Fyrr í mánuðinum samþykkti Pútín lög sem gerir frétta­flutning sem gengur gegn opinberri afstöðu rússneskra stjórn­valda til stríðsins í Úkraínu ólögmætan.

Ríki heims hafa beitt refsiaðgerðum gegn Rússland og útilokað Rússa frá alþjóða­viðskiptum og alþjóð­lega banka­kerfinu. Þá hafa Anonymous gripið til óhefðbundinna aðgerða gegn landinu.

Hópurinn hefur hótað alþjóða­fyrirtækjum sem enn starfa í Rússlandi eftir innrásina í Úkraínu og sent frá sér skilaboð: „Þinn tími er að renna út. Við fyrir­gefum ekki. Við gleymum ekki.“ Og fyrr í þessum mánuði buðu meðlimir sem tengjast hópnum rússneskum hermönnum $ 52.000 í Bitcoin ef þeir myndu yfirgefa skrið­dreka sína á vígvellinum.

Vefsíða sem auðveldar textaskilaboð í rússnesk símanúmer

Eftir því sem stríðið í Úkraínu dregst á langinn stig­magnast baráttan samhliða á netinu. Hópur pólskra tölvu­þrjóta sem kallar sig Squad 303 (nefndur eftir pólskri orrustu­sveit frá síðari heims­styrjöldinni) gerðu vefsíðu sem hefur gert fólki kleift að senda texta­skilaboð í rússnesk símanúmer af handahófi til að segja þeim hvað er gerast í Úkraínu. Hópurinn telur að um 20 milljónir SMS og WhatsApp skilaboða hafi verið send í gegnum þjónustuna, að sögn BBC.

Ríkis­stjórn Úkraínu er einnig sögð vilja styrkja baráttu sína á netinu. Samkvæmt tísti frá Mykhailo Fedorov, vara­forsætis­ráðherra Úkraínu, segir hann mjög mikilvægt að vernda netinnviði Úkraínu og hefja gagn­árásir.

Mykhailo Fedorov, vara­for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu

„Við erum að búa til upplýsingatækniher og leitum eftir hæfileika­fólki“ sagði Fedorov.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá