Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ómar Már var á leið í land þegar snjóflóðið féll: Hryllingurinn eftir snjóflóðið sker enn í hjartað

Ómar Már Jónsson
Ómar Már Jónsson Mynd: Iris Dogg Einarsdottir

„Við vorum á leiðinni í land á Bessa ÍS 410 og vorum að gera við trollið sem hafði rifnað og það var svo mikið aftaka­veður að maður fékk hellur fyrir eyrun á dekkinu. Það er eftir­minnilegt hvað veðrið var vont. Þegar við nálguðumst höfnina taldi skip­stjórinn að það væri of vont í sjóinn og of blint til að leggjast að höfninni. Síðan komu skilaboð úr brúnni að það hafi fallið snjóflóð á miðja Súðavík. Það fyrsta sem ég hugsaði með mér var að foreldrar mínir bjuggu í miðri Súðavík og systir mín með sína fjöl­skyldu þar rétt hjá,“ segir Ómar Már Jónsson, oddviti Miðflokksins til borgar­stjórnar, í viðtali við Mannlíf, þegar hann rifjar upp þegar snjó­flóðið féll á Súðavík árið 1995.

„Hafsteinn Númason var einnig um borð og húsið hans og fjöl­skyldu var líka á því svæði. Maður var í óvissu í tölu­verðan tíma um hversu alvarlegt þetta var og engin leið að vita hversu mörg hús hefðu orðið fyrir flóðinu. Það eina sem við gátum gert var að reyna að lýsa með ljós­kösturum á svæðið sem við töldum að snjó­flóðið hefði fallið á því leitar­fólk var komið til Súðavíkur til að leita og aðstoða þá sem náðu að koma sér sjálfir úr flóðinu.“

Snjó­flóðið féll á miðja Súðavík 16. janúar árið 1995 kl. 06.25. Það var staðfest með því að klukka sem var í póst­húsinu sem flóðið féll einnig á hafði stöðvast þá.

Stór hluti úr byggð­inni var bara far­inn.

Ómar Már Jónsson var á þessum tíma II stýri­maður á Bessanum og segir hann að þeir Hafsteinn hafi viljað komast í land til að huga að sínum nánustu. „Við sigldum síðan innar í fjörðinn og vorum þar ferjaðir með tuðru yfir í minna skip sem gat komið okkur að höfninni. Er á höfnina var komið var blindhríð en báðir leituðumst við að horfa upp í byggðina til að athuga með hús okkar nánustu, hvort þau hefðu orðið fyrir flóðinu. Ég var að athuga hvort ég sæi í sortanum hús foreldra minna og hús systur minnar og Hafsteinn var að skima eftir sínu húsi. Það var algjör­lega blint þegar við komum á höfnina og maður sá ekki langt en stuttu eftir að við lögðum af stað í átt að frysti­húsinu datt allt í einu allt í dúnalogn og þá sáum við hversu alvarlegt þetta var. Stór hluti úr byggðinni var bara farinn. Maður sá útlínur flóðsins og skemmdirnar og bara það hörmulega atvik sem þarna hafði orðið. Við fórum strax upp í frysti­húsið. Fagranesið hafði komið rétt áður með lækna, hjúkrunarlið, leitar­fólk og leitar­hunda og var verið að flytja inn í frysthúsið fólk sem var verið að finna.“

Faðir vor, þú sem ert á himnum.

Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,

verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.

Lést eins og hálfs árs

Ómar Már hitti mág sinn sem var lítillega slasaður en systir Ómars hafði verið flutt um borð í Fagranesið sem átti að sigla til Ísafjarðar. Tvær dætur þeirra voru ófundnar.

„Ég fór um borð í Fagranesið og var dálítinn tíma hjá systur minni en hún var í miklu áfalli af að vita ekki um afdrif barnanna þeirra tveggja. Síðan fór ég aftur upp eftir og hjálpaði til eins og ég gat. Ég fór svo með Fagranesinu síðar til Ísafjarðar en þá var farið með þá sem voru slasaðir ásamt hópi af Súðvíkingum sem vildu komast frá staðnum. Þetta var svakalegasta sjóferð sem ég hef nokkurn tímann farið í,“ segir Ómar Már en allir voru eðlilega í miklu áfalli.

Önnur þeirra var ósködduð. Hin látin.

Hann segist hafa búið á Ísafirði á þessum tíma. Sá síðasti sem fannst á lífi var 12 ára gamall drengur sem fannst um sólar­hring eftir að flóðið féll. Systur­dætur hans fundust báðar. Önnur þeirra var ósködduð. Hin látin. Sú var tæplega eins og hálfs árs.

Þegar allir voru fundir og veður orðið betra hófst hreinsunar­starf.

„Þá var ég í því í nokkra daga að grafa í rústum húsa systur minnar og fjöl­skyldu hennar og svo hjá foreldrum fyrr­verandi mágs míns. Þarna skipti miklu máli að finna sem mest af persónu­legum eigum – myndir, mynda­bands­upptökur og fleira; persónu­lega munum sem skiptu miklu máli: Myndir og bara einföldustu hlutir sem höfðu verið í eigu fjöl­skyldnanna.“

Gef oss í dag vort daglegt brauð.

Fyrirgef oss vorar skuldir,

svo sem vér og fyrir­gefum

vorum skuldunautum.

Svöðusár

Áfallið var svo mikið að Ómar Már segist hafa sett á sjálf­stýringu. „Allar tilfinningar og allt þetta mannlega var eiginlega pínulítið sett á „hold“. Maður fór inn í þessa atburðarás og reyndi að gera sitt besta og gera mikið af því og reyna að hjálpa, styðja við og gera lífið léttbærara fyrir alla. Ég veit ekki einu sinni hversu lengi ég var á þessari sjálf­stýringu. Það voru einhverjar vikur. Ég man að með okkur var áfalla­sérfræðingur sem var nýfarinn að veita áfalla­hjálp sem var tiltölu­lega nýtt á þessum tíma og hann tók okkur inn á milli í samtöl og spurði meðal annars hvernig okkur liði. Ég hafði enga líðan. Maður var ekki í stöðu til þess að tjá sig um það hvernig manni leið. Það var hægt að nýta mann til þess að hjálpa og þannig keyrði maður sig áfram. Svo get ég sagt þér að í þrjú til fjögur ár var ég að fá eitthvað sem gæti kallast eðlileg viðbrögð við jafnmiklu áfalli; þar sem maður grét yfir því sem hafði gerst.“

Þögn.

„Þar sem maður í rauninni var bara pínu­lítill í sér og mér fannst ég vera vanmáttugur gagnvart náttúru­öflunum og því sem hafði gerst.“

Það þarf að lifa með þessu og það gengur mis­jafn­lega hjá fólki að gera það.

Ómar Már þekkti nánast alla sem bjuggu í Súðavík. „Þetta voru vinir manns, kunningjar og samferða­fólk í lífinu. Þetta er eitthvað sem enginn hristir af sér. Þetta er ekki eitthvað sem grær. Það þarf að lifa með þessu og það gengur misjafnlega hjá fólki að gera það. Þetta er hluti af manni og maður aðskilur hann aldrei frá sér. Það sem ég tók út úr þessu er að virða hvern dag og verða betri útgáfa af sjálfum mér, að vera hæfari til að taksat á við verkefni og styðja við aðra, sína nánustu, börnin og að undirbúa þau sem best undir lífið til að þau séu sem hæfust til að takast á við þau verkefni sem þau eru í eða eiga eftir að taka sér fyrir hendur.“

Hann er trúaður og hann bað til Guðs á þessum erfiðu tímum.

„Ég fann hvað ég var vanmáttugur og hvað ég er í rauninni lítill og þá sótti ég styrk í eitthvað sem er mér æðra. Eitthvað stærra. Eitthvað meira.“

Þögn.

„Það veitti mér styrk á þessum tíma.“

Bað hann ákveðinnar bænar?

„Það var í sjálfu sér heima­tilbúin bæn og Faðirvorið. Ég bað fyrir þeim sem áttu um sárt að binda.“

Svöðu­sárið var djúpt í miðjum bænum.

„Ég var á sjónum eftir þetta og það var alltaf stingur í hjartanu þegar við vorum að koma í land en þá sá maður byggðina frá sjó og sá skarðið sem hafði verið hoggið í bæinn. Það var alltaf sárt. Það sat í manni í langan tíma á eftir. Þá kom þetta flash back. Þetta rifjaðist upp. Og raun­veruleikinn blasti við manni í þessu stóra svöðusári í miðri Súðavík þar sem vantaði svo mikið af húsum.“

Og eigi leið þú oss í freistni,

heldur frelsa oss frá illu.

Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin

að eilífu

Amen.

SAMSUNG TECHWIN DIGIMAX-230

Krossinn stóri

Árið 2002, sjö árum eftir snjó­flóðið, var auglýst eftir sveitar­stjóra í Súðavík.

„Ég fann hjá mér svo mikla köllun að geta tekið þátt í að byggja upp aftur. Að búa til meiri tiltrú á samfélagið. Að heila samfélagið ef svo má að orði komast.“

Ómar Már Jónsson var ráðinn sveitar­stjóri árið 2002.

„Eitt af fyrstu verk­efnunum var að láta búa til minningar­reit um þá sem höfðu farist í snjó­flóðinu. Ég fékk Pétur Jónsson landslags­arkitekt til að vinna það með mér og það var eitt erfiðasta verkefni sem ég hef farið í á minni lífsleið vegna þess að ég var í persónu­legum samskiptum við alla þá sem höfðu misst og voru margir ósáttir við hvað hafði gerst daginn fyrir flóðið og einnig hvernig staðið var að hreinsun í þorpinu eftir flóð.“

Úr varð minningar­reitur með stórum kross með nöfnum þeirra sem fórust.

Hvað með önnur eftir­minnileg verkefni á 12 ára sveitar­stjórnar­ferlinum? Ómar Már segist hafa lagt áherlsu á að auka tiltrú Súðvíkinga á fram­tíðina.

„Það er í rauninni margþætt. Það voru atvinnu­málin í fyrsta lagi; að tryggja að það væri atvinna handa öllum. Að tryggja að byggðin næði að blómstra og að íbúum fjölgaði sem og tækifærum sem gekk út á að aðlaga samfélagið og innviði þess að ferða­þjónustu sem var byrjuð að banka upp á hjá okkur árið 2002. Svo var það að fegra byggðina og gera hana eins góða og kostur var fyrir alla hópa samfélagsins hvort sem það var fólk sem vildi flytja til Súðavíkur, fyrirtæki sem myndu vilja flytja sig til Súðavíkur eða ferðamenn sem myndu vilja sækja okkur heim um stundar­sakir.“

Fyrsta sveit­ar­fé­lagið á land­inu sem gerði leik­skól­ann gjald­frjálsan.

Ómar Már lagði áherslu á að fara svolítið ótroðnar slóðir og segir hann að Súðavík hafi verið fyrsta sveitar­félagið á landinu sem gerði leik­skólann gjald­frjálsan.

„Síðan bjuggum við til atvinnumála­styrki til að höfða til fyrir­tækja sem myndu vilja staðsetja sig í Súðavík.“

Það skorti atvinnu­húsæði í bænum og gekkst Súða­víkur­hreppur við því að byggja tvö stór atvinnu­húsnæði fyrir rekstur fyrir­tækja og úr varð Iðngarðar sem er atvinnu­húsnæði fyrir bæði skrif­stofur og iðnaðar­rými fyrir marg­víslega starfsemi. „Þá byggðu verktakar þriðja atvinnu­húsnæðið undir sína starfsemi.“

Á meðal annarra verkefni sem Ómar Már kom að fyrir hönd sveitar­félagsins má nefna stofnun Melrakka­seturs Íslands sem hann er mjög stoltur af.

Skortur á fyrirhyggju

Ómar Már hafði rekið eigið fyrirtæki í Reykjavík áður en hann gerðist sveitar­stjóri og eftir að hann kvaddi Súðavík árið 2014 hefur hann stofnað fleiri fyrirtæki í Reykjavík. Nú vill stýri­maðurinn fyrr­verandi róa á önnur mið og það í höfuð­borginni. Hann er oddviti Miðflokksins til borgar­stjórnar.

„Ég var í fjórða sæti í Reykjavík suður fyrir síðustu alþingis­kosningar en það hafði verið sótt að mér að gefa kost á mér ofarlega á lista en ég var upptekinn í öðrum verkefnum og hefði ekki þann tíma og fókus til að gera það vel og taldi þá betra að vera í fjórða sæti og vinna með í baklandinu. Ég er þannig karakter að þegar ég tek eitthvað að mér þá fer ég alla leið; ég geri það af heilindum og mér er umhugað um að fara alla leið með því markmiði að ná árangri í því sem ég tek mér fyrir hendur.“

Vand­ræða­gang­ur­inn í öllum þessum mála­flokkum sé fyrst og fremst skortur á fyr­ir­hyggju.

Hver eru áherslu­málin?

„Við höfum nýlega hleypt af stokkunum heimasíðu, xmreykjavik.is, þar sem sjá má allar áherslur okkar í öllum mála­flokkum en stærstu málin fyrir þessar kosningar teljum við vera fjármál borgarinnar sem eru komin í algert óefni, húsnæðis­vandinn á höfuð­borgar­svæðinu sem er í algjöru óefni og samgöngu­málin. Það má segja að óefnin eða vandræða­gangurinn í öllum þessum mála­flokkum sé fyrst og fremst skortur á fyrir­hyggju. Því ætlum við að breyta. Setja íbúa í borginni í fyrsta sæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá