Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Afdrifaríkt Lekamál: Lögreglustjóri hrakinn úr starfi og Gísli Freyr dæmdur fyrir trúnaðarbrot

Lekamálið vakti mikla athygli á árunum 2013 og 2014. Minnis­blað sem innihélt bæði trúnaðar­upplýsingar og ósannar sögu­sagnir um hælis­leitandann Tony Omos var lekið af Gísla Frey Valdórs­syni, aðstoðar­manni Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur innan­ríkis­ráðherra.

Þann 20. nóvember árið 2013 birti Frétta­blaðið trúnaðar­upplýsingar um Tony Omos sem sneru að tengslum hans við þrjár konur, faðerni hans að ófæddu barni og aðild hans að mansali, allt var þetta byggt á upplýsingum sem Frétta­blaðið höfðu fengið úr óformlegu minnis­blaði úr ráðuneytinu.

Tony kom til Íslands frá Sviss árið 2011 sem flótta­maður og óskaði eftir hæli. Útlendinga­stofnun synjaði beiðni hans og stóð til að senda hann aftur til Sviss, mánuði eftir komu hans til landsins. Talsmaður hans kærði ákvörðun útlendinga­stofnunnar en í október 2013 staðfesti innan­ríkis­ráðuneytið að Tony fengi ekki hæli hér á landi. Þess vbar krafist að málinu yrði áfrýjað til dómstóla en Tony var sagður eiga von á barni með unnustu sinni sem einnig var flótta­maður. Ráðuneytið hafnaði þeirri kröfu og átti Tony að verða sendur úr landi þann 19. nóvember 2013. Íkjölfar þeirra ákvörðunnar fór hann í felur. Samtökin No Borders boðuðu til mótmæla fyrir utan innan­ríkis­ráðuneytið þar sem mótmælt var sundrun fjöl­skyldunnar frá Nígeríu.

Minnis­blað um Tony Omos, sem tekið var saman af skrif­stofustjóra í innan­ríkis­ráðuneytinu, var vistað á opnu drifi ráðuneytisins og sent á Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur, innan­ríkis­ráðherra og aðstoðar­menn hennar ásamt ráðuneytis­stjóra. Morguninn eftir birti Frétta­blaðið innihald minnis­blaðsins. Annar aðstoðar­maður Hönnu Birnu þvertók fyrir það að minnis­blaðið kæmi úr ráðuneytinu. Í minnis­blaðinu voru, ásamt hælis­beiðni Tony, full­yrðingar um að meint barns­móðir hans hafi verið mannsals­fórnalamb og að Tony hefði neytt hana til þess að segja hann vera föður ófædds barns síns til að tryggja honum hæli. Barns­móðirin sagði síðar í viðtölum að Tony hefði aldrei beitt hana neinum þrýstingi.

Innan­ríkis­ráðuneytið sendi frá sér yfir­lýsingu þar sem greint var frá því að „ekkert bendi til þess að slík gögn hafi verið afhent frá embættis­mönnum innan­ríkis­ráðuneytisins og að upplýsingarnar gætu hafa borist fjöl­miðlum frá mörgum stofnunum, embættum og einstaklingum.

Gísli Freyr Valdórsson, aðstoðar­maður Hönnu Birnu, sagði í viðtali við fjölmiðla að möguleiki væri á því að óbreyttur starfs­maður ráðnuneytisins hafi lekið upplýsingunum en að skjalið sjálft væri ekki til í ráðuneytinu. Gísli var seinna ákærður fyrir brot á þagna­skyldu og sendi Hanna Birna þá frá sér yfir­lýsingu:

„Rétt í þessu tilkynnti annar aðstoðar­maður minn, Gísli Freyr Valdórsson, mér að lögmaður hans hefði nú síðdegis fengið upplýsingar um að ríkis­saksóknari hyggðist birta honum ákæru vegna kæru vegna meðferðar persónu­upplýsinga um hæliseitenda.  

Þrátt fyrir að Gísli Freyr hafi ávallt haldið því fram gagnvart mér að hann sé með öllu saklaus af málinu og geri það enn, hef ég tekið þá ákvörðun að leysa hann nú þegar frá störfum á meðan málið er til meðferðar fyrir dóms­stólum.    

Ég hef að auki óskað eftir því við forsætis­ráðherra að þau málefni sem undir mig heyra og hafa með dómsstóla og ákæruvald að gera færist til annars ráðherra í ríkis­stjórn á meðan dómsmál á hendur Gísla Frey stendur yfir, enda tel ég mikilvægt að friður skapist um fjölmörg mikilvæg verkefni innan­ríkis­ráðuneytisins.“

Gísli Freyr játaði að lokum að hafa lekið trúnaðar­upplýsingum eftir að rannsókn sýndi að hann hafi átt við skjalið sem innihéldu upplýsingarnar og var dæmdur til að greiða bæði Tony Omos og barns­móður hans, Evelyn Glory Joseph, skaða­bætur en að beiðni þeirra var fjárhæð bótanna haldið leyndri.

Forsíða DV

Önnur hlið þessa mál var að Hanna Birna kallaði Stefán Eiríkisson lögreglu­stjóra á sinn fund vegna rann­sóknar leka­málsins. Stefán sagði af sér sem lögreglu­stjóri en ráðherrann hlaut fordæmingu margra vegna afskiptanna. Hanna Birna sagði loksins af sér eftir mikla gagnrýni almennings en neitaði fyrir að það tengdist leka­málinu. Hún hvarf úr stjórn­málum í fram­haldinu og gegnir nú störfum á alþjóða­vettvangi. Gísli Freyr starfaðik við almanna­tengsl um árabil en var í dag ráðinn frétta­stjóri Morgun­blaðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá