Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Ásta sár og reið út í Guffa: „Guðfinni finnst ég kannski óheppin með útlitið, takk fyrir pent!“

Ásta Þórdís Skjalddal, sem býður sig fram fyrir Sósíalista­flokkinn í Reykjavík fyrir komandi sveita­stjórnar­kosningar, er sár og reið yfir athugasemd sem Guðfinnur Stefán Halldórsson, betur þekktur sem Guffi bílasali, skrifaði undir mynd af henni á Facebook í gær.

Forsaga málsins er sú að Facebook-vinur Guðfinns deildi færslu Sósíalista­flokksins þar sem Ásta og baráttumál hennar voru kynnt til sögunnar. Undir þá færslu skrifaði Guðfinnur: „Siggi minn svaka eru fólkið þitt óheppið með útlitið.“

Ásta skrifaði athugasemd við komment Guðfinns þar sem hún sagði:

„Af því að það er það eina sem skiptir máli? Þá vitum við hvernig þú ert þenkjandi og getum framvegis snúið okkar bíla­viðskiptum annað.“

Ætlar ekki að þegja yfir þessu

Ásta fylgdi þessari athugasemd svo eftir með pistli sem hún skrifaði og birti á framboðs­síðu sinni í gærkvöldi. Af honum að dæma var Ástu eðlilega mjög misboðið.

„Kæru vinir og félagar, ég er yfir mig hneyksluð núna. Ég er sár en ég er líka öskureið og ég ætla alls ekki að þegja yfir þessu svo ykkur er velkomið að deila,“ segir hún í pistlinum og heldur áfram:

„Eins og flestir vita þá er ég í framboði fyrir Sósíalista­flokk Íslands af því að ég hef ýmislegt fram að færa eftir langan feril í félags og baráttu­málum og áratuga lærdóms­ríkt starf og öfluga baráttu gegn fátækt – bæði í störfum mínum fyrir EAPN samtök gegn fátækt og sem samhæfingar­stjóri Pepp Íslands, grasrótar fólks í fátækt og því hefur nýverið verið birtur stuttur pistill um mig og fleiri fram­bjóðendur flokksins inni á Sanna Reykjavík sem að hægt er deila þaðan til að kynna okkur fram­bjóðendurna fyrir væntanlegum kjósendum.

Einn vinur minn var svo elsku­legur að deila mínum pistli og það vakti þau viðbrögð hjá Guðfinni bílasala sem sjá má af meðfylgjandi skjáskoti,“ segir hún og birtir mynd af athugasemdinni.

Niðurlægjandi, óþarft og særandi

„Ég veit ekki hvort öðrum finnst Guðfinnur jafn fyndinn og myndar­legur og honum sjálfum finnst hann greini­lega vera, en ég sé bara ekkert fyndið við að gera lítið úr fólki á þennan hátt og smætta það og málstað þess á jafn niður­lægjandi máta og hér er gert, fyrir utan hvað þetta er óþarft og særandi,“ segir hún og heldur áfram:

„Þetta viðhorf og þessi framkoma er hreint ekki boðleg, árið er 2022 en ekki 1922 og samfélagið ætlar ekki að sætta sig við þessa eitruðu forréttinda­karlmennsku lengur.

Síðast þegar ég vissi var Reykja­víkurborg ekki stýrt af útliti borgar­ráðsmanna einu saman heldur af getu viðkomandi, af færni, samvinnu, dugnaði, þekkingu og kunnáttu svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún og endar pistilinn á þessum orðum:

„Guðfinni finnst ég kannski óheppin með útlitið, takk fyrir pent! en ég er of vel upp alin og of kurteis til að segja hvað mér finnst, að öðru leiti en því að ég veit hvaða bílasölu ég ætla aldrei nokkurn tímann framar að eiga viðskipti við, né mæla með við nokkurn mann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá