Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Prins Póló tekst á við dauðann af æðruleysi: „Mér finnst þetta ekki óþægilegar hugsanir“

Svavar Pétur
Svavar Pétur Mynd: Facebook

Svavar Pétur Eysteinsson var í viðtali hjá Kveik á Rúv í kvöld þar sem hann ræddi um sköpunina, lífið og dauðann. Sagðist hann óttast sársauka en ekki dauðann í sjálfu sér.

„Mér finnst vonin svo skemmtileg. Vonin er svo trúarleg, finnst mér. Þannig að ég tengi það svolítið saman, vonina og trúna og hún heldur manni gangandi svolítið lengi. Þegar ég fer langt niður, til dæmis þegar ég er að glíma við krabba­mein eins og ég er að gera núna, þá er í rauninni stiginn upp úr því er bara vonin. Annað hvort að hugsa bara það að þú ert allavegana hér í dag, eða að hugsa vonina sem stærra samhengi. Hver veit nema þú verðir bara elsti maður Íslands? Þannig að það er hluti af þessari von, þú veist aldrei neitt, þú veist aldrei nema bara næsta skref sem þú tekur,“ sagði Svavar í Keik.

Brynja Þorgeirs­dóttir sem tók viðtalið, spurði Svavar hvort hann hugsaði mikið um dauðann. „Já ég hugsa mikið um dauðann. Óttast hann ekki. Ég óttast auðvitað sársauka, eins og bara allir. Ekki nema kannski hnefaleika­menn sem að óttast ekki sársauka, get ég ímyndað mér,“ svaraði Svavar og hló. „En ég óttast ekki dauðann sem slíkan. Hann er eitthvað sem við eigum öll sameiginlegt. Hvenær hann kemur er bara tíma­spursmál í rauninni, hann sækir okkur á mismun­andi tímum. En svo er maður farinn að hugsa um það þegar ég dey, hvað verður þá um hina? En mér finnst þetta ekki óþægilegar hugsanir. Þær eru í rauninni þægilegar og veita manni bara smá frið, að leyfa sér að hugsa um það og ræða það.“

Brynja spurði hann þá hvort dauðinn sé tabú. „Ég veit það ekki eða jú, ég held það, ég held að það séu margir sem að skauta yfir hann, sérstak­lega í samræðum við börn og finnst stundum eins og það sé óviðeigandi, að vera að ræða dauðann. Og ég hef alveg verið í þeirri aðstöðu sjálfur. En ég hef kannski gert minna af því eftir að dauðinn varð að svona aktúal fyrirbæri fyrir mér.“

Brynja spurði Svavar þá að því hvernig það sé fyrir hann að vita að dauðinn sé ekki langt í burtu, þó að hver og einn viti ekki sinn vitjunar­tíma. „En í þínu tilfelli veistu að hann er ekki svo langt í burtu.“ „Hugsanlega,“ skaut þá Svavar inn í áður en Brynja hélt áfram: „Ég vil bara fá að vita það, hvernig maður tekst á við það.“ „Sko ég í rauninni tekst á við það rosalega bara einn dag í einu. Og hugsa þá bara áfram um dauðann sem hlut sem er þarna einhver­staðar þarna úti og hversu nálægt hann er, skiptir mig kannski ekki öllu máli, vegna þess að ég er á lífi í dag og ég er að fást við það sem mér finnst skemmtilegt. Og ég mun að öllum líkindum gera það líka á morgun. Og það dugar mér alveg.“

Sjá má viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá