Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Heitustu hárgreiðslurnar í sumar

Mynd/skjáskot: Elle
Mynd/skjá­skot: Elle

Nú eru margir eflaust farnir að velta fyrir sér hvaða hárgreiðslu skuli skarta yfir sumar­mánuðina. Það er algengt að fólk vilji ýmist létta á hárgreiðslunni á sumrin, gera hana á einhvern hátt „ferskari“ eða lágmarka viðhald meðan það er á faralds­fæti í fríinu.

Samkvæmt Elle eru þetta aðal hártrendin fyrir sumarið 2022.

Mynd/skjá­skot: Elle

„Blow out“ í anda tíunda áratugarins

Þessi greiðsla hefur verið að sækja í sig veðrið undan­farið. Hún er allra helst fyrir hár í síðari kantinum, þar sem töluverðu púðri er eytt í að blása hárið eftir þvott, með hringlaga bursta. Auk þess að mikilvægt að hafa gott fyllingar­sprey í handraðanum, til dæmis saltvatns­sprey, sem og öflugt hársprey til þess að halda öllu í ákjósanlegu formi. Fylling er lykil­atriði hér.

Mynd/skjá­skot: Elle

Tagl með miðjuskiptingu

Tagl í sítt hár er alltaf klassískt, sérstak­lega á sumrin þegar fólk vill gjarnan halda hárinu frá andlitinu. Það mikil­vægasta við þessa greiðslu er skiptingin, en hún skal vera í miðjunni. Taglið má vera bæði hátt og lágt. Til þess að skiptingin haldist eins og hún á að vera er best að skilja eftir lokka sitthvorum megin við skiptinguna og setja afganginn af hárinu í tagl. Því næst er hvor lokkur um sig festur við taglið.

Mynd/skjá­skot Elle

Náttúrulegur þurrkur

Í þessu dæmi er minna meira. Þessi aðferð er hentug fyrir hár í síðari kantinum, þar sem lokkarnir eru látnir þorna á náttúru­lega mátann, með því að láta ferska loftið leika um þá. Þetta er þægileg aðferð á sumrin þegar sund­laugarnar eru stundaðar í meiri mæli. Í þessu tilfelli er mælt með góðri hárnæringu sem ekki þarf að skola úr, til dæmis í sprey­formi. Saltvatns­sprey eða annað fyllingar­sprey sem lyftir hárinu í rótina er sniðugt.

Mynd/skjá­skot: Elle

Hárklemmur

Ojá, hárklemmurnar eru komnar aftur í öllu sínu veldi og munu vinsældir þeirra bara koma til með að aukast í sumar. Hægt er að fá hárklemmur í öllum stærðum og gerðum, svo allar hártýpur og hárlengdir ættu að geta rokkað þær. Elle mælir með því að greiða hárið vandlega niður að framan með fínni greiðu og setja síðan gel í hárið til þess að tryggja að engin hár komist undan og festa greiðsluna almennilega.

Mynd/skjá­skot: Elle

Helmingur uppi, helmingur niðri

Meira frá tíunda áratugnum. Helmingur hársins tekinn upp í tagl, hinn helmingurinn niðri og tveir beinir lokkar teknir út fyrir taglið að framan. Skiptið hárinu fyrir ofan eyru og búið til efri og neðri helming. Efri helmingurinn er því næst settur í tagl, fyrir utan lokk sitthvorum megin sem flæða niður með andlitinu. Ágætt er að slétta lokkana tvo til þess að ýkja útlitið. Fyrir suma er sniðugt að nota smá gel eða hársprey til að sleikja hárið aftur í taglið.

Mynd/skjá­skot: Elle

Sléttan

Hár sem er haft alveg slétt er að koma sterkt inn þessi misserin, enda um að ræða töff og klassíska greiðslu. Til þess að ná fram „sléttunni“ skal blása hárið og slétta það því næst vandlega með sléttu­járni. Munið endilega eftir hita­vörninni, hún gerir í alvöru gæfu­muninn þegar kemur að heil­brigði hársins. Byrjið uppi við ræturnar og sléttið hvern lokk alla leið niður.

Hér ættu í það minnsta síðhærðir að geta tekið gleði sína og prófað einhverja af þessum greiðslum sem munu slá í gegn með hækkandi sól.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt