Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Telur forstjóra Samherja hafa grætt 25 milljónir á Íslandsbanka: „Ekki slæm ávöxtun á þremur vikum“

Þorsteinn Már Baldvinsson.
Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Baráttu­maðurinn Óskar Steinn Ómarsson er með skoðanir á hlutunum og fer ekkert í felur með þær. Hann ritar áhuga­verðan pistil þar sem umfjöllunar­efnið er salan á Íslands­banka:„Í gærkvöldi birti ég færslur þar sem ég hélt því fram að nokkrir aðilar sem fengu að kaupa í lokuðu útboði á Íslands­banka í síðasta mánuði væru búnir að selja sína hluti með tugmilljóna króna hagnaði. Upplýsingarnar byggði ég á frétta­flutningi Kjarnans, sem kom svo í ljós að var rangur. Einstaklingarnir sem um ræðir eru víst ekki búnir að selja. Þetta leið­réttist hér með,“ segir Óskar Steinn og bætir við:„Hið rétta er að þeir halda flestir enn á sínum hlutum og geta því vænst þess að þeir hækki ennþá meira í verði.“

Óskar Steinn Ómarsson

Óskar Steinn bendir á nokkra sem keyptu í Íslands­banka en hafa ennþá ekki selt hlut sinn, eins og langflestir sem keyptu hafa nú þegar gert:

„Ef við gerum ráð fyrir að kaupendurnir eigi allir eftir að leysa út sinn hagnað, þá er staðan þessi þremur vikur eftir útboð, miðað við gengi hluta­bréfa í Íslands­banka í dag: Hlutur Benedikts Sveins­sonar, föður fjármála­ráðherra, hefur hækkað í verði um fjóra og hálfa milljón. Hlutur Pálma Haralds­sonar, kenndur við Fons, hefur hækkað í verði um 19 milljónir. Hlutur Karls Wernerssonar (sem er að nafninu til skráður á son hans)  hefur hækkað í verði um 19 milljónir. Hlutur Þorsteins Más Baldvins­sonar, forstjóra Samherja, hefur hækkað í verði um rúmar 25 milljónir. Hlutur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hefur hækkað í verði um 38 og hálfa milljón. Hlutur Ágústs og Lýðs Guðmunds­sona, kenndir við Bakkavör, hefur hækkað í verði um 40 milljónir króna. Hlutur Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðar­konu úr Vestmanna­eyjum, hefur hækkað í verði um 40 milljónir króna. Þessar upphæðir væru sumsé hreinn hagnaður fyrr­nefndra einstaklinga ef þeir seldu sína hluti í dag. Ekki slæm ávöxtun á þremur vikum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá