Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Draugurinn í Stakkahlíð – Barði á glugga og lyfti borði

Það var á eyði­býlinu Stakka­hlíð í Loðmunda­firði sem tveir frændur urðu fyrir óskemmtilegri lífs­reynslu. Þeir voru á leið í rjúpna­veiði í nóvember árið 1992 og ákváðu að gista á eyði­býlinu í þrjár nætur en það var notað sem gistiheimili á sumrin.

Húsið var á þremur hæðum, í kjallaranum var eldhús, matsalur og salerni, á miðhæðinni voru svefn­herbergi. Á háloftinu var svo stórt svefnpoka­pláss fyrir ferðafólk og gesti.

Þegar frændurnir sneru til baka úr veiðinni og höfðu fengið sér að borða ákváðu þeir að sofa í matsalnum, þá þyrfti einungis að kynda eina hæð. Um klukkan hálf fjögur að nóttu vaknaði annar mannana við að bankað var ítrekað á gluggann fyrir ofan hann, þegar hann leit á frænda sinn, sem svaf á borði, sá hann borðið liftast og skella aftur til jarðar, þetta gerðist nokkrum sinnum á meðan maðurinn sem hafði sofið á borðinu reyndi af öllum mætti að koma sér niður. Þegar hann náði sér loks niður af borðinu skall allt í dúnalogn.

Mennirnir ákváðu að ganga í kringum húsið og reyna að fá skýringar á því hvað hafi komið fyrir, engin spor voru í snjónum né önnur merki um manns­ferðir, kyrrðin fyllti loftið.

Mönnunum datt í hug að um jarð­skjálfta væri að ræða og hringdi þá annar þeirra í móður sína sem hafði samband við Veður­stofu Íslands, engar jarð­hræringar voru þessa nótt, enda er þetta ekki svæði sem er þekkt fyrir jarð­skjálfta.

„Þessi ferð varð okkur afar minnis­stæð, eins og gefur að skilja. Hvorugur okkar hefur þann eigin­leika, ef eigin­leika skyldi kalla það að skynja það sem er utan okkar jarðneska sviðs og því komu þessi ósköp okkur eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ segir annar mannana í bókinni Reim­leikar eftir Guðjón Inga Eiríksson. Maðurinn sagði frá því að hafa tvisvar snúið aftur í Stakka­hlíð og gist þar, þá í svefn­herbergi og aldrei orðið var við neytt þessu líkt aftur.

Frændunum grunar að þarna hafi einhver verið ósáttur með að annar þeirra svæfi uppi á borði, það væri einfald­lega verið að kenna þeim mannasiði.

Heimild: Reim­leikar, Guðjón Ingi Eiríksson, 2009. Saga frá Sigirjóni Andra Guðmunds­syni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá