Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dr. Skúli fékk ekki framlengingu: „Þegar ég sá þetta í morgun varð ég fegin“

Skúli Tómas Gunnlaugsson.
Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Starfs­leyfi Dr. Skúla Tómasar Gunnlaugs­sonar var ekki endurnýjað í gær eftir að takmarkaða starfs­leyfi hans rann út. Hann er til rann­sóknar hjá lögreglu vegna alvarlegra brota í starfi gegn minnst sex sjúklingum, en öll meint brot gerðust er hann var yfir­læknir á Heilbrigðis­stofnun Suður­lands.

Dr. Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur verið starfandi læknir á Land­spítalanum síðasta árið þrátt fyrir að hann sé til lögreglu­rannsóknar vegna gruns um alvarleg brot í starfi gegn að minnsta kosti sex sjúklingum en einnig hefur Land­læknir nokkur viðbótarmál til rann­sóknar. Til að byrja með var hann undir eftirliti og frá því í maí síðastliðnum starfaði hann með „takmarkað starfs­leyfi“, eins og það er kallað en Mannlíf hefur aldrei fengið útskýringu frá Land­spítalanum eða Landlækni á meiningu þess.

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeðhöndlaðar sýkingar kunni að hafa verið aðal dánar­orsök“
Sjá einnig: Lands­réttur hafnar beiðni Evu og fjöl­skyldu: „Ætli við þurfum ekki bara að boða til anda­fundar?“

Á vefsíðu Embættis Land­læknis er hægt að fletta upp nöfnum heilbrigðis­starfsmanna með gilt starfs­leyfi og þegar það var gert í gær mátti sjá að Dr. Skúli var skráður með starfs­leyfi. Þegar nafn hans var slegið í dag var hann hvergi að finna. Því má leiða að því líkum að hann hafi annað hvort ekki sótt um starfs­leyfi eða verið hafnað um slíkt.

Mannlíf spurði Evu Hauks­dóttur hvað henni fyndist um málið en hún er ein af þeim ættingjum sem hafa kært Dr. Skúla til lögreglu. Dr. Skúli setti móður hennar í lífsloka­meðferð án þess að hún væri dauðvona. Hún lést 11 vikum síðar. Hefur fjöl­skylda móður hennar beðið í ofvæni eftir því að sjá hvort hann fái fram­lengingu á starfs­leyfi sínu.

„Mér fannst undarlegt á sínum tíma að land­læknir teldi forsendur fyrir endur­veitingu starfs­leyfis læknis á meðan hann sætir lögeglurannsókn vegna gruns um alvarleg brot í starfi gegn fjölda sjúklinga. Ég hef beðið í ofvæni eftir því að sjá hvort þetta takmarkaða starfs­leyfi yrði framlengt eða rýmkað og þegar ég sá þetta í morgun varð ég fegin. Það er auðvitað mögulegt að það eigi bara eftir að skrá fram­lengingu eða rýmkun starfs­leyfis en ég vona að svo sé ekki því mér finnst bara ekki boðlegt að hann beri ábyrgð á sjúklingum á meðan málið er í rannsókn.“

Hér má sjá að Skúli hafði starfs­leyfi til 12.11 2021
Í dag er ekki hægt að finna Skúla á skrá yfir lækna með starfs­leyfi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá