Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Stefna eiganda Bræðraborgarstígs þar sem þrír létust – Reykskynjarar óvirkir og engin slökkvitæki

Skjáskot Rúv
Skjáskot Rúv

Alls hafa sautján manns stefnt Kristni Jóni Gíslasyni og HD verki og krefjast bóta vegna brunans við Bræðra­borgar­stíg 1 en þrír létu lífið í brunanum. Bæturnar nema samtals rúmum 324 milljónum en stefnendur eru tíu manns sem lifðu af brunann og sjö fjölskyldu­meðlimir þeirra sem létust en húsið var í eigu HD verks en Kristinn er eigandi fyrir­tækisins. Þá telja stefnendur sannað að Kristinn hafi valdið þeim tjóni en húsið hafði ekki fullnægjandi bruna­varnir, eldvarnir og eldvarnar­eftirlit. Auk þess hafi breytingar verið gerðar á húsinu til þess að fleiri íbúar kæmust þar fyrir, breytingarnar leiddu til aukinnar eldhættu. Reyk­skynjarar í húsinu virkuðu ekki og var þar engin slökkvitæki að finna en Frétta­blaðið greindi frá stefnunni í morgun.

Sex þeirra sem lifðu brunann af urðu fyrir varanlegri örorku en tveir þeirra krefjast þjáningar­bóta. Allir tíu sem lifðu brunann hafa þurft að leita sé aðstoðar hjá sálfræðingi eða geðlækni vegna áfalla­streitu­röskunar, kvíða eða þung­lyndis.

Aðstand­endur þeirra látnu krefjast allir fjögrra milljóna en þeir sem lifðu af krefjast allt frá fjórum milljónum til tæplega 30 milljóna króna.

Marek Moszczynski var í júní í fyrra sýknaður af þreföldu manndrápi, tilraun til manndráps og brennu en var hann dæmdur til þess að sæta öryggis­vistun á réttar­geðdeild. Marek reyndist sekur um graf alvarleg brot en var dæmdur ósakhæfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá