Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Uppgjöf eða gjöf?

Lára Garðarsdóttir
Lára Garð­ars­dóttir

Aðsend skoðun eftir Láru Garðars­dóttur

Skömmin við uppgjöf. Fyrir skemmstu var ég í aðstæðum sem ég réð ekki við. Allur máttur var sleginn úr mér og engan veginn tókst mér að vinna mig í gegnum það. Komst hvorki aftur á bak né áfram. Svo ég henti hand­klæðinu inn í hringinn og gekk í burtu.

Ekki í fyrsta skiptið á lífs­leiðinni sem ég gefst upp og alveg örugglega ekki það síðasta.

Ef eitthvað er mér um megn – þá fer ég, loka og skelli í lás. Innri gagn­rýnandi er þá eldsnöggur að banka upp á og minna mig á hvers lags mislukkaður aumingi ég er. Lára Gunga Garðars­dóttir.

Samfélagið kennir okkur: Að auglýsa vanmátt sinn fer fjær því að vera töff. Að opinbera veiklyndi og veikleika sína magnar þá. Að vera eitthvað annað en svell­kaldur á beinu brautinni er glatað tabú. Uppgjöf er aumt. Svart eða hvítt. Allt eða ekkert.

Í orðinu uppgjöf fylgir dulin skömm og sárt tap. Uppgjöf er endir – án uppgjörs.

En á endanum gefumst við öll upp, þegar við sjáum ekki fram á að komast yfir hindrunina. Gefumst upp ef þyngslin eru of mikil eða álagið lang­varandi.

Með merkingu orðsins fylgir aldrei hversu mikið var reynt, prófað, fórnað, hamast, grátið. Vitið veit að sá sem gefst upp er ekki aumingi. Hlutirnir voru full­reyndir – jafnvel aðeins of mikið og aðeins of lengi. Rödd gagn­rýnandans má kæfa, þar sem vitað er að; uppgjöf er gjöf – enda falin í orðinu. Sá sem á uppgjöf er með boltann í höndunum. Uppgjöf er fyrsta kast, sem er jafnvel álitið vera lukka.

Að gefast upp og ganga burt úr aðstæðum sem þjóna okkur ekki krefst hugrekkis, sjálfs­virðingar og samkenndar í eigin garð. Krefst þess að við eigum innra með okkur rödd sem lætur okkur heyra hvað sé rétt fyrir okkur og hvað ekki.

Það er ekki hindruninni að kenna að við ráðum ekki við hana – og ekki er það okkar að breyta henni.

Uppgjöfin var mín – og nú með boltann í annarri og spaðann í hinni, þá ætla ég að gefa upp og spila næstu lotu – þangað til ég stolt gefst upp.

Lára Garðars­dóttir

Pistill þessi og fleira gott birtist í nýjasta tölublaði Mannlífs og má lesa HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá