Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Enn ein viðvörunin – Veðrið gæti orðið varasamt vegfarendum

Mynd úr myndabanka
Mynd úr mynda­banka

Enn ein gula viðvörunin dynur á lands­mönnum á morgun með suðaustan stormi um mestallt land. Sumsstaðar verða viðvaranir appelsínu­gular, til að mynda á Faxaflóa, Breiða­firði, Vestfjörðum og Norður­landi vestra. Veðrið gæti orðið varasamt vegfarendum.

Á höfuð­borgar­svæðinu verður viðvörunin gul og eflaust margir farnir að fá sig fullsadda af þessu ástandi, en stöðugar lægðir hafa gert lands­mönnum lífið leitt undan­farna mánuði.

„Mjög djúp lægð er væntanleg að Hvarfi í fyrra­málið. Sendir hún skil yfir landið með stormi eða roki, tals­verðri rigningu og hlýnandi veðri,“ segir á vef Veður­stofunnar.

Birta Líf Kristins­dóttir, veður­fræðingur á Veður­stofu Íslands, segir í samtali við frétta­stofu RÚV að veðrið verði líklega verst á Norður­landi vestra.

„Það er verið að spá 20-28 metrum á sekúndu.  Það er víðs vegar um vestan­vert landið. Það eru appelsínu­gular viðvaranir á Faxaflóa, Breiða­firði, Vestfjörðum og Norður­landi vestra. Ef maður þyrfti að velja einhver svæði sem væru sýnu verri en annað þá væru það Norður­land vestra, þeir eru með mestan vindinn, en á hinum svæðunum þar sem eru appelsínu­gular viðvaranir verður þetta líka mjög slæmt.“

Hlýindi og mikil úrkoma fylgja lægðinni og því er viðbúið að leysingar gætu orðið nokkrar. Fólki er því ráðlagt að vera vakandi fyrir miklu vatni sem geti safnast á götur, sem og að hreinsa frá ræsum.

Fyrsta viðvörunin tekur gildi klukkan 10 í fyrra­málið. Birta segir að eftir það fari þær að tínast inn ein af annarri. „Rétt eftir miðnætti annað kvöld eru síðustu viðvaranirnar að renna út.“

Á RÚV segir að veðrið gæti orðið varasamt vegfarendum, samkvæmt veður­fræðingi hjá Vega­gerðinni. Blint verður með skaf­renningi á Sand­skeiði og Hellis­heiði frá því um klukkan 8. Reikna má með hátt í þrjátíu metrum á sekúndu með vatns­veðri frá því um klukkan 11 á Reykja­nesbraut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá