Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Jordan Peterson móðgast og yfirgefur Twitter: „Ekki fallegt“

Jordan Peterson
Jordan Peterson

Tvítverjum víðsvegar um heiminn var nóg boðið þegar Jordan Peterson, sálfræðingur, fyrir­lesari og rithöfundur, gerði lítið úr útliti ungrar fyrirsætu á Twitter-aðgangi sínum.

„Fyrirgefiði. Ekki fallegt. Og ekkert alræðislegt umburðar­lyndi kemur til með að breyta því,“ skrifaði Peterson og birti mynd af forsíðu tíma­ritsins Sports Illustrated. Forsíðuna prýðir fyrirsætan Yumi Nu, klædd í sundbol. Yumi Nu telst svokölluð „plus size“ fyrirsæta á ensku, eða „stærri“ fyrirsæta ef hægt er að segja slíkt.

Yumi Nu á for­síðu Sports Ill­u­strated.

Yumi Nu, sem er 25 ára, hefur sjálf sagt að það hefði breytt lífi hennar að sjá fyrirmynd sem liti út eins og hún á forsíðu tímarits þegar hún var 13 ára. Nu er af asískum uppruna. „Ef hún hefði séð það áður en hún sá nokkuð annað, þá held ég að hún hefði lifað öðruvísi lífi með öðruvísi hugarfari,“ segir Nu um sitt 13 ára sjálf.

Jordan Peterson hefur verið umdeildur í gegnum tíðina fyrir skoðanir sínar. Hann hefur verið ötull talsmaður gegn pólitískum rétt­trúnaði en gagn­rýnendur hans hafa meðal annars haldið því fram að skoðanir hans séu litaðar kven­fyrirlitningu.

Tíst Peterson um fyr­ir­sæt­una.

Peterson fékk á baukinn á Twitter eftir skrif sín um Yumi Nu. Þar var ummælum hans meðal annars snúið á hann sjálfan, þar sem fólk birti myndir af honum með sömu skila­boðum og hann skrifaði um Nu. Þetta er svo sannarlega ekki í fyrsta sinn sem Peterson lendir í netdeilum, en í þetta sinn voru það ekki bara andstæðingar hans sem gagnrýndu hann, heldur líka aðilar sem telja sig til aðdáenda.

„Úff. Jordan Peterson. Mikill aðdáandi hér. Kærastan mín er með líkama eins og þennan og mér þykir hún afskaplega falleg. Tónaðu þetta aðeins niður félagi,“ skrifar til dæmis einn fylgjenda hans á Twitter.

Einn endur­birtir tíst Peterson þar sem hann segir: „91 prósent þeirra sem horfa á mynd­böndin mín eru karlmenn. Hvers vegna? Hvers vegna svona fáar konur?“ Við hlið tístsins birtir aðilinn ummæli Peterson um Yumi Nu, sem hugsanlega skýringu þess að færri konur virðist tilheyra áhorfenda­hópi hans.

Ótal athuga­semdum rigndi inn frá fólki sem velti því fyrir sér hvers vegna Peterson þætti hann hafa tilkall eða leyfi til þess að leggja dóm sinn opinber­lega á líkama annarrar manneskju og með því niður­lægja hana frammi fyrir milljónum fylgjenda sinna.

Eftir að Peterson hafði fengið á sig stóran skerf af gagnrýni og háði á Twitter tilkynnti hann í fússi að hann ætlaði sér að hætta á miðlinum, en hann er mjög virkur þar.

„Stans­lausa flóðið af andstyggilegum móðgunum er raun­verulega eitthvað sem þú upplifir hvergi annarsstaðar,“ sagði Peterson um Twitter þegar hann tilkynnti um yfir­vofandi brott­hvarf sitt af miðlinum.

Úr einu af mynd­böndum Peterson á sam­fé­lags­miðlum.

„Regla 13: Þegar þú gerir mistök og ert gagn­rýndur, hættu þá í fússi og flýðu af hólmi. Eins og karlmaður,“ skrifar einn notandi um viðbrögð Peterson og vitnar í metsölubók sem hann skrifaði, sem inni­heldur 12 lífs­reglur búnar til af honum sjálfum.

„Ég kemst ekki yfir þá staðreynd að Jordan Peterson notaði milljóna gjallar­hornið sitt til þess að kalla konu í bikiníi óaðlaðandi og sagðist þremur klukku­stundum síðar ætla að yfirgefa Twitter, vegna þess að fólk væri svo andstyggilegt við hann,“ skrifar annar notandi og ótal fleiri taka í sama streng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt