MannlífiðTrendin sem verða ríkjandi árið 2019 Litagleðin heldur áfram að ráða ríkjum innan heimilisins og munum við sjá bæði dekkri og dýpri tóna og á hinn bóginn koma hlýlegir og friðsælir jarðlitir til með að ná töluverðum vinsældum. Á árinu sem leið var fólk ansi duglegt að glæða heimili sín nýju lífi með hjálp málningarrúllunnar og þar verður svo sannarlega ekkert lát á! Við spáum því að fólk fari í meiri mæli að mála loftin í hressandi litum þegar líður á árið, en þetta mun breyta ásýnd og stemningu heimilanna umtalsvert – hvítt er svo sannarlega ekki heitasti veggliturinn lengur!
MannlífiðHefur tileinkað sér mínimalískan lífsstíl í sjö ár Allmargir hafa eflaust heyrt um mínimalískan lífsstíl, en vita kannski ekki hvar er best að byrja á stórri lífsstílsbreytingu eins og þessari. Við náðum tali af Sigurlaugu Elínu Þórhallsdóttur en fjölskylda hennar hefur tileinkað sér lífsstílinn í sjö ár og fengum við að forvitnast örlítið um hvað málið snýst.
MannlífiðDjúpsteiktur camembert – klassík sem allir elska Hver man ekki eftir djúpsteiktum camembert? Þessi réttur var mjög vinsæll á áttunda áratugnum og var þá gjarnan borinn fram sem eftirréttur en hann er líka tilvalinn sem forréttur eða smáréttur og á sérlega vel við á notalegum vetrarkvöldum. Hér kennum við ykkur hvernig á að gera hann en það er auðveldara en margan grunar. Djúpsteiktur camembert – skref fyrir...
MannlífiðMyndband – Föstudagsdrykkurinn: Whiskey sour Hér er skemmtilegt myndband af whisky sour með skemmtilegu tvisti.
MannlífiðKlassísk og hlýleg hönnun í Keflavík Hús og Híbýli heimsóttu þau Viktoríu Hrund Kjartansdóttur og Brynjar Guðlaugsson í sumar í fallega nýuppgerða íbúð í Keflavík. Íbúðin er 95 fermetrar að stærð í húsi sem byggt var á áttunda áratugnum. Íbúðin samanstendur af tveimur rúmgóðum herbergjum, samliggjandi opnu eldhúsi og stofu auk baðherbergis.
Mannlífið„Vonlaust ef ég fékk ekki gagnrýni og bara hrós“ Við fengum að gægjast inn í vinnustofu grafíska hönnuðarins og teiknarans Sigríðar Rúnar sem er einna þekktust fyrir verkefnið „Líffærafræði leturs“.
MannlífiðSkandinavískur bóhemstíll heima hjá Linneu Í hádeginu á rólegum og björtum miðvikudegi banka blaðamaður og ljósmyndari upp á í fallegu raðhúsi í Fossvoginum. Til dyra kemur hin glæsilega Linnea, en hér býr hún ásamt fótboltamanninum Gunnari Þór og börnum þeirra, þeim Þóru og tvíburunum Viðari og Elvari. „Ég er fegin að þið eruð örlítið sein, en ég náði að skjótast í sturtu á meðan!“ segir Linnea, nýböðuð og fersk.
MannlífiðKjóla- og kökusjúkur bakari, blaðmaður og rithöfundur Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona og blaðamaður DV, og nú líka rithöfundur og bókaútgefandi því á síðastaári gaf hún út kökubókina Minn sykursæti lífsstíll sem hún hefur selt eins og heitar lummur. Við heyrðum í Lilju og fengum að kynnast henni á nýjan hátt.
MannlífiðSkemmtilegt myndband úr innliti á steikhúsið Reykjavík Meat Í fyrsta tölublaði Gestgjafans 2019 er að finna skemmtilegt innlit á veitingastað. Að þessu sinni var farið á Reykjavík Meat sem opnaði dyr sínar haustið 2018 á Frakkastíg 8.
MannlífiðÓmótstæðileg perukaka Perur eru unaðslegar og þær verða enn betri þegar þær eru notaðar í bakstur eins og hér er gert. Gott er að bera kökuna fram volga með vanilluís eða rjóma, það er blanda sem getur ekki klikkað. Peruterta fyrir 10-12 4 perur safi úr 1/2 sítrónu 1/2 vanillustöng 3 msk. olía 4 dl möndlumjöl 3 1/2 dl hveiti 3 1/2...
MannlífiðHrátt og heillandi Þorsteinn Eyfjörð Jónsson, eigandi Handverkshússins, og gullsmiðurinn Lovísa Halldórsdóttir Olesen búa í fallegu einbýlishúsi í Garðabænum ásamt börnum þeirra beggja og hundinum Myrru. Einbýlishús þeirra Þorsteins og Lovísu var byggt árið 1968 og eru rúmir 240 fm að stærð. Húsið er vel skipulagt á einni hæð og er rýmið töluvert opið og flæðir skemmtilega. Þau fluttu inn sumarið 2017 og...